31.03.1927
Efri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í D-deild Alþingistíðinda. (3726)
91. mál, störf fiskifulltrúans á Spáni
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Jeg skal taka það fram, að mjer kemur það ekkert undarlega fyrir, þó að þeir menn, sem mest hafa barist gegn þessu starfi, hafi ekki sannfærst um gagnsemi þess á þeim 2 árum, sem liðin eru frá því að það hófst, einkum þegar þess er gætt, að sumir þessara manna munu að jafnaði mjög tregir að viðurkenna fyrri mistök sín, jafnvel þó að þeir sjeu sannfærðir um þau.