06.04.1927
Efri deild: 46. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 771 í D-deild Alþingistíðinda. (3741)

92. mál, yfirsíldarmatsstarf á Austurlandi

Jóhannes Jóhannesson:

Því miður hefir lítið verið um síldveiðina á Austurlandi, jeg held síðan árið 1909. Aftur á móti er það kunnugt, að síldveiðin byrjaði á Austfjörðum, og voru þar um langt skeið bestu síldveiðasvæðin. Mjer var sagt það af gömlum mönnum, að þeir hefðu veitt því eftirtekt, að síldin flytti sig kringum landið, og væri 30 ár að því, og mjer virðist margt benda á, að svo geti verið. Síldin hefir t. d. farið sunnan um land og norður með því að vestan, og svo austur um með Norðurlandinu, og um nokkur ár hefir miðstöð síldveiðanna verið á Siglufirði og Eyjafirði. En um nokkur ár hafa menn veitt því eftirtekt, að frá þessum stöðum hafa menn orðið að sækja síldina austur fyrir sig, og í fyrra veiddist töluvert af síld á Austfjörðum. Jeg á þess vegna sterka von á því, að síldaraflinn aukist á Austfjörðum og það er mín von og trú, að sá tími eigi eftir að koma, að Austfirðir verði slík miðstöð aftur.

Jeg verð að telja það fullgilda ráðstöfun, sem gerð hefir verið, að skipa ekki fastan mann í þessa stöðu, því að þangað til í fyrra gat verið full ástæða til þess að athuga, hvort ekki hefði verið rjett að leggja starfið niður. Jeg held, að það sje einmitt heppilegt fyrirkomulag, sem nú er, að það er settur næsti yfirsíldarmatsmaður til þess að gegna stöðunni, því að þá má undir eins kippa því í lag, með því að setja sjerstakan yfirsíldarmatsmann á Austurlandi. Og jeg fyrir mitt leyti treysti hæstv. stjórn til þess, ef nokkurt útlit verður fyrir síldveiði á Austfjörðum í sumar, því að hún á hægt um vik, þar sem yfirsíldarmatsmaðurinn á Akureyri er settur til að gegna starfinu um tíma. En það skyldi ekki koma flatt upp á mig, þótt jafnvel á næstkomandi sumri yrði að gera þessa breytingu, og efast jeg þá ekki um, að hæstv. stjórn muni framkvæma hana, svo framarlega sem þess verður þörf.