06.04.1927
Efri deild: 46. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í D-deild Alþingistíðinda. (3745)

92. mál, yfirsíldarmatsstarf á Austurlandi

Jón Baldvinsson:

Jeg vildi aðeins svara því, sem hæstv. atvrh. (MG) og hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) halda fram, að embættið hafi ekki verið lagt niður. En hvað er það þá, sem gerist hjer? Það er skipað svo fyrir í lögum, að yfirmatsmenn skuli vera fjórir, en nú eru þeir aðeins þrír. Mjer skilst, að hæstv. stjórn hafi þarna felt niður eitt starf, sem ákveðið er í síldarmatslögunum. Þar er öllu landinu skift niður í fjögur umdæmi, en nú hefir hæstv. stjórn slegið tveimur umdæmum saman, sem lögin gera ráð fyrir að eigi að vera í höndum tveggja manna. Það er því svo, að hæstv. stjórn hefir sameinað tvö umdæmi í eitt, og það verður ekki með neinum lagaflækjum hægt að komast í kringum það.

Hæstv. atvrh. (MG) var að segja, að það væri lítill kjarkur í því fólginn að bera þungar sakir á menn. En hreinsi hæstv. ráðh. (MG) sig þá. Hann hefir hjer fult málfrelsi og getur borið fram þau rök, sem hann hefir.

Hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) hælir sjer af því að vera ekki „hreppapólitíkus“ eins og jeg. Það er náttúrlega gott fyrir hv. þm. (JóhJóh) að vera sjer þess meðvitandi, en hitt er ekki víst, að allir líti svo á starfsemi hv. þm. (JóhJóh) hjer á þingi, að þeir telji hann með öllu lausan við hreppa- og stjettapólitík.