11.03.1927
Efri deild: 25. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í B-deild Alþingistíðinda. (377)
66. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Eins og tekið er fram í nál. allshn. á þskj. 146, leggur nefndin til, að frv. verði samþykt með lítilli breytingu. Það má nú að vísu segja, að hart sje fyrir mann, sem aðeins er grunaður um að vera smitberi, að frv. verði að lögum. En nefndin leit svo á, að þá nauðsyn bæri til, að hægt væri að koma í veg fyrir slíka smitun, að ekki væri í þau óþægindi horfandi, er af því kunna að stafa, með því að slíkir menn geta verið stórhættulegir sem sýkilberar.
Þá vil jeg geta þess, eins og vikið er að í nál., að hjer er í raun og veru ekki um að ræða breytingu á lögum um varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma, heldur ber þetta að skoða sem viðauka við þau lög, þar eð um þetta atriði hafa ekki gilt nein ákvæði áður. Jeg býst því við, að allshn., ef frv. nær fram að ganga samkvæmt till. hennar, komi við 3. umr. fram með brtt. um fyrirsögn þess. — Frá nefndinni hefir komið aðeins 1 breyting, og ber hana frekar að skoða sem leiðrjetting en annað. Nefndin sá ekki betur en að þessi orð, er hún leggur til, að falli burt, væru þýðingarlaus, og málið miklu óeðlilegra, ef þau stæðu.