23.04.1927
Efri deild: 56. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3050 í B-deild Alþingistíðinda. (3772)

20. mál, Landsbanki Íslands

Frsm. meiri hl. (Björn Kristjánsson):

Það hefir verið sagt svo margt, sem jeg þarf að svara, að jeg veit ekki, hvar jeg á helst að bera niður. En þar sem hv. 5. landsk. virðist vera svo óþreyjufullur, held jeg, að jeg verði að meta hann mest.

Hann harmar mjög það ástand, að ekki megi standa í bankalögunum, að seðlabankar megi lána til sveitar- og bæjarfjelaga, þrátt fyrir það, að jeg hefi skýrt honum frá, að það sje hvergi annarsstaðar gert. Við verðum að vænta þess, að bankalögin komi á erlend tungumál. Þau eru einu íslensku lögin, fyrir utan stjórnarlög, sem koma á önnur tungumál, en það yrði okkur til minkunar, ef slíkt ákvæði kemur inn í frv., því að það mundi ríða í bága við lánsreglur seðlabanka. Verstu lánin, sem jeg hefi haft með að gera, eru lán til sveitar- og bæjarfjelaga. (JBald: Hefir nokkuð tapast?). Ekki beinlínis tapast. En það ætti að nægja, sem búið er að segja, til þess að sýna, að þetta á ekki við.

Brtt. við 43. gr. c. sýndi jeg fram á í gær, að meiri hlutinn gæti ekki fallist á. Bankaráðið á að hafa vald til þess að skifta verkum milli bankastjóranna, eins og stjórnin nú hefir vald til þess.

Hv. þm. heldur því enn fram, þrátt fyrir það, sem jeg sagði í gær, að bankaeftirlitsmaðurinn nægði til þess að rannsaka og meta hag bankans. Þetta er fullkomið þekkingarleysi hjá hv. þm. Ef ske kynni, að hv. þm. gæti lært og vildi læra, ætla jeg að endurtaka það. Það var svona: „Mat á auðvirðilegasta húskofa er ekki tekið gilt, nema að minsta kosti 2 menn meti. Og oft er það mat ekki tekið gilt og því áfrýjað til yfirmats. En þetta mat, sem hjer á að fara fram, er fullnaðarmat, sem ekki verður áfrýjað. Því verður þessi nefnd að vera skipuð að minsta kosti 5 mönnum. Það er ekki einungis til þess að fá tryggingu fyrir rjettu mati að skipa hana svo mörgum mönnum, heldur er það vegna þess, að matið er svo umfangsmikið á bankanum og útibúum hans“. Þetta endurtek jeg við alla, sem enn halda því fram, að einn maður nægi til þess að meta bankann til verðs.

Þá er það ekki síður misskilningur, að bankaeftirlitsmaðurinn sje rannsóknarnefnd í nokkru landi. Hann lítur á hag bankans, athugar bækur hans og reiknar pósta, sem eru fyrirfram endurskoðaðir af „krítiskri“ endurskoðun. En þá undirstöðu vantar hjer alveg. Embætti þetta er stofnað, en undirstöðuna vantar. En ef eitthvað ber út af og kemst í óreglu, er það ekki hann, sem rannsakar það, heldur er þá skipuð sjerstök nefnd. Þetta er satt og það ættu þeir hv. þm., sem aldrei hafa komið nærri bankamálum, en þykjast kunna alt, að reyna að skilja. Það er leiðinlegt að þurfa að hlusta á annan eins misskilning og aðra eins vanþekkingu og þetta. Svo segir hv. þm., að matið sje ofsókn. Þegar verið er að finna út, hvernig hagur bankans sje og stungið upp á, að hæstirjettur útnefni til þess menn, þá er þetta kallað ofsókn, og það af sósíalistunum hjer í hv. deild. Af hverju vilja þeir ekki, að hæstirjettur útnefni mennina? Það er auðvitað af því, eins og hæstv. ráðh. gat um, að þeir vilja geta sagt á eftir, þegar stjórnin hefði útnefnt menn: „Þetta er ekki að marka. Flokksráðherra útnefndi mennina“ Einmitt með þetta fyrir augum, til þess að allir geti verið vissir um hlutleysi, hefir meiri hlutinn gert þessa uppástungu, og eins og jeg gat um í fyrstu ræðu minni, verð jeg að telja það víst, að öll þjóðin meti mikils einmitt þetta atriði. Hverjum treystir þjóðin betur en sínum hæstarjetti?

Það hefir komið fram hjá hv. 4. landsk., hv. 5. landsk. og hv. 1. þm. Eyf., að ekki hefði verið mikið að marka matið á Íslandsbanka 1922. Það hefði komið í ljós síðan, að ástæður bankans hefðu ekki verið þær, sem matsmenn hjeldu. Hvort hv. þm. segja þetta móti betri vitund, skal jeg ekki um segja, en jeg vil taka það fram, að mat eins banka er að sjálfsögðu miðað við það ástand, sem bankinn er í á þeim tíma, sem matið fer fram, en hvorki á undan eða eftir, og síst er hægt að sjá fram í tímann. Þessir hv. þm. sjá það líka, en þeir vilja fá einhverja átyllu til þess, fyrst og fremst að tala og svo til að rugla.

Hv. 1. þm. Eyf. sagði ekki annað en það, sem hv. 1. landsk. hefir sagt. Það er hans venja. Hann vill ómögulega láta bankaráðsmenn vera valda af utanþingsmönnum. Hann er ekki enn farinn að sjá, hvernig flestallar kosningar á Alþingi hafa mishepnast, t. d. bankaráðskosningin. Reynslan er sú, að aðeins er kosið með flokksfylgi og oft til þess að hjálpa nauðstöddum flokkum.

Hv. þm. Str. (TrÞ) sagði um daginn, að hann hefði tekið að sjer endurskoðunarstarfið í Landsbankanum einungis til þess að grenslast eftir, hvað viss stjett fengi af peningum í landinu, í samanburði við aðrar stjettir. Svona er hugsunarhátturinn. Þjóðin er enn ekki komin svo langt að skilja það, að endurskoðun, sem dugir, er eitthvað það hollasta og nauðsynlegasta fyrir eina þjóð.

Hv. 1. þm. Eyf. sagði, að þessi maður mætti ekki vera braskari, ekki vera skuldskyldur bankanum, yrði að vera efnalega sjálfstæður o. s. frv. Já, alt þetta væri æskilegt, en undir okkar kringumstæðum er ekki hægt að taka tillit til alls. En fyrst og fremst ber að varast að velja þá menn til þessa starfa, sem daglega eiga í pólitískum erjum.

Þá talaði háttv. þm. um, að ekki væri nógu trygt að láta þriggja manna bankaráð gera ályktun. En hjer eru sömu hlutföllin og t. d. í Noregsbanka. Þar mega þeir minst vera 9. En hv. þm. gleymir, að ákvæði eru í tillögum meiri hlutans, sem skylda þá bankaráðsmenn, sem eru fjarverandi, til þess að gera athugasemd, er þeir koma heim, ef þeim líkar ekki ráðsmenskan í fjarveru þeirra. Í því felst trygging.

Þá sagði hv. þm., þrátt fyrir mína skýringu, að aðalbankastjóri hefði meiri völd. Jeg benti á í gær, að allir geta áfrýjað jafnt, ef þeir eru í minni hluta, og það gerir fullkomið jafnrjetti.

Jeg held jeg sje nú búinn að ganga frá þessum fáu atriðum, því að stuttorður verð jeg að vera um hvað eina; af nógu er að taka. Jeg veit ekki, hvort jeg á að leggja í hv. 1. landsk. (JJ); jeg held jeg verði þó að svara stuttlega nokkru í hans löngu ræðu. Fyrst talaði hann um drauga og þess háttar, sem jeg get varla verið að svara, vegna þess að hæstv. ráðh. hefir tekið það ómak af mjer. En svo var hann með ýmsar dylgjur, eins og hann er vanur, sem ekki er hægt að henda neinar reiður á. Hann sagði enda, að jeg hefði staðið mjög nærri þeim mönnum, sem vildu leggja Landsbankann niður. Hann gat ekki haldið fram, að jeg hefði þá verið á þingi, því að auðvelt er að sanna, að svo var ekki. En það er vonin um, að eitthvað loði við, eins og vant er hjá honum.

Þá gerði hann æðimikið úr því, til þess að reyfa þessi bankamál, að jeg hefði borið fram bráðabirgðafrv. 1924 um seðlaútgáfuna. Jeg bar það fram til þess að koma skriði á málið og vissi vel, að það frv. þurfti töluverðra umbóta við. Jeg skrifaði það á mjög stuttum tíma og hafði ekki nægan tíma til þess. Það hefir verið lagt fyrir útlenda menn og ljettvægt fundið. Við höfðum ekki einu sinni tíma til þess á því þingi að athuga það í nefnd; en samt var farið með það eins og frv., sem jeg væri alveg búinn að ganga frá. — Hann sagði sem dæmi um það, hve lítið fylgi það mál hefði hjá þjóðinni, að Sigurður Eggerz hefði ekki fengið fleiri atkv. við landskjörið í sumar. Látum það alt saman vera. Jeg er ánægður með það, þótt menn finni að þessu frv. Jeg játa, að það var ekki eins fullkomið eins og ef jeg hefði haft nægan tíma með það. En það varð þó til þess, að skriður komst á málið og því hefir verið haldið lifandi síðan.

Um endurkauparjettinn ætla jeg að sleppa að tala, af því að hæstv. forsrh. hefir svarað því og svarað því rækilega. Jeg hafði líka talað um það í gær og sýnt fram á, að það væri ekki rjett og sanngjarnt að kippa þessum hlunnindum Íslandsbanka nú burt, þegar hann einmitt þarf hjálpar við.

Háttv. 1. landsk. var að tala um, að nauðsynlegt væri fyrir Landsbankann að hafa skjól. Jeg sagði, að Landsbankinn hafi altaf haft skjól meðan jeg var bankastjóri, — aðeins hefði vantað á, að jeg persónulega hefði skjól; jeg vildi ekki það skjól, sem mjer var boðið, — það var bæði lekt, götótt og fúið, það skjól. Jeg rjeð því af að draga mig til baka og fá lítil eftirlaun, í staðinn fyrir 24 þús. kr. á ári eins og bankastjórar hafa nú.

Jeg benti á það ennfremur í gær, að ekki væri alt undir komið að hafa eitthvert skjól; það yrði og að vera úr góðu efni og til virkilegs stuðnings fyrir þá stofnun, sem nyti þess skjóls.

Nú hefir þetta breyst alveg, síðan jeg fór úr bankanum; bankastjórnin hefir haft skjól, en Landsbankinn ekki. Það kemur fram í þessum umræðum um brtt. hv. meiri hl. Þær stefna að því að veita Landsbankanum skjól, en ekki bankastjórninni.

En hvað er nú þetta skjól, sem Landsbankastjórnin hefir? Það er annar aðalkommúnistinn í landinu. Það kom svo rækilega í ljós í ræðu hv. 1. landsk., þegar jeg sagði frá því í ræðu minni, hverjir hefðu verið hvatamenn að því, að bankinn var rannsakaður 1909. Jeg sagði þá, að jeg gerði þetta af því, að þetta væri síðasta þingið, sem jeg sæti, til þess að það kæmi einhverntíma fram, hvernig á því hefði staðið; því að jeg vissi, að öðrum var gefin skuld fyrir það. Og jeg sje, að það hefir ekki verið að ófyrirsynju að koma með þessa aths., því að hv. 1. landsk. sagði, að fyr eða síðar bærust böndin að mjer.

Þá veittist hann mjög mikið að mjer fyrir það, að jeg væri nú að gera Birni heitnum Jónssyni ráðherra smán, að hafa drepið á þetta atriði. En það er fjarri mjer. Það var maður, sem jeg mat mest allra, síðan jeg kom til vits og ára. En jeg vildi einmitt segja, að jeg vildi láta það koma fram, að jeg hefði ekki verið hvatamaður að rannsókninni, þó að jeg áliti þá — og álíti enn — að hana ætti að framkvæma. Það er rjett, að sú aðferð, sem notuð var, var harkaleg; hún var alt of hvöss, og það var þeim að kenna, sem stjórnina höfðu. Það voru 3 lögfræðingar, sem nefndir voru í gær, sem rjeðu mestu eða öllu um aðferðina. Og það var eðlilegt, að gamall maður, sem Björn Jónsson ráðh. var þá orðinn, og þá heilsubilaður, færi eftir sínum ráðunautum, þar sem sonur hans var líka einn meðal þeirra lögfræðinga, er gáfu honum ráð. Jeg gerði það fyrir sjerstaka vináttu við Björn Jónsson að taka stjórnina á bankanum að mjer, sem jeg þó ekki ætlaði að gera, og rjeð honum að fela hana Jóni Gunnarssyni í Hafnarfirði. En af því að það varð úr, að jeg tók starfið að mjer, þá fengu andstæðingarnir og þeir, sem mestu rjeðu um afsetninguna, tækifæri til þess að segja: Það er hann, sem hefir lagt ráðin á og verið hvatamaður að því, að bankastjóranum var vikið frá og gæslustjórum. En „plan“ þessara manna, ef svo má segja, var það, að ná bankanum undir sín yfirráð fyr eða seinna. Og sú hefir reynslan líka orðið.

Sem sönnun þess, að jeg hefði verið hvatamaður að rannsókninni, kom hann með ýms orð, sem hann hafði eftir Kristjáni Jónssyni og voru á aðra hönd. (JJ: Það er í þingtíðindunum). Það er á aðra hönd fyrir því. Kristján Jónsson sagði það hjer, að jeg hafi varpað öndinni mæðilega yfir því, að setja ætti bankastjórann frá og gæslustjóra. Hvað sannar þetta nú? Ekkert annað en það, að jeg hefi verið á móti því. En það get jeg sagt, að Kristján Jónsson hugði í fyrstu, að þetta væri mjer að kenna, en hann komst skömmu síðar að raun um, að svo var ekki. Og jeg átti ekki annan tryggari og betri vin en Kristján Jónsson í mörg ár eftir það.

En til þess nú að taka af öll tvímæli um það, að jeg hafi verið sá seki, sem hv. 1. landsk. vill kalla það, — en jeg kalla það enga sekt, því að rannsóknin var nauðsynleg, þótt aðferðin væri skökk, — þá vil jeg leyfa mjer að benda á þskj. 974 í Alþt. A. 1911. Þar eru lagðar fyrir mig margar spurningar, og Björn Sigurðsson bankastjóra. 20. spurningin hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Taldi bankastjórinn ráðherra Björn Jónsson á það að skipa rannsóknarnefnd á Landsbankann, og hvatti hann ráðherra til þess að víkja gæslustjórunum frá, eða latti hann þess, að gæslustjórarnir væru settir inn aftur í stöður sínar í jan. 1910?“

Svar mitt var svona:

„Jeg hafði ekki, svo jeg muni, nein afskifti af því, að bankarannsóknin var hafin. Jeg latti þess, að gæslustjórunum yrði vikið frá, sökum óeirða, sem af þeirri frávikningu mundi stafa, og er prófastur Jens Pálsson í Görðum vitni til þess, að svo gerði jeg. Jeg latti ráðherra að setja gæslustjórana inn aftur í janúar 1910, af ástæðum, sem greindar eru undirtölulið 19“.

Og töluliður 19 hljóðar svo:

„Jeg áleit, að hætta gæti af því stafað, meðal annars af því, að bankastjórnin gat búist við því að þurfa skyndilega að hætta að gefa ávísanir á Landmandsbankann og aðra banka, sem Landsbankinn hafði heimild til að ávísa á fyrir milligöngu Landmandsbankans. Eins og á stóð í janúarmánuði 1910, er allmikill aðsúgur var gerður að bankanum, gat svo farið, að óviðráðanlegur ótti hefði slegið almenning, ef samtímis hefði fyrir komið, að bankinn hefði orðið að hætta að selja venjulegar ávísanir á erlenda banka“.

Þetta svar mitt tók nefndin gilt. Síðan eru liðin 16 ár. Og þeir menn, sem jeg hefi sagt, að væru frumkvöðlar að rannsókninni, hafa ekki sagt eitt einasta orð á móti þessu. Jeg verð að álíta, að í öll þessi ár hafi þögn þeirra gilt sem samþykki. — [Fundi frestað].

Jeg man ekki almennilega, hvar jeg endaði áðan, því þegar jeg athuga uppteiknanir mínar, sje jeg það sama á tveim og þrem og fjórum stöðum. Þetta stafar af því, að hv. 1. landsk. hefir þann óvana að endurtaka altaf það sama hvað eftir annað. — Hann segir, að jeg hafi hlotið að vita um bankarannsóknina, meðan hún var í undirbúningi. Veit hv. þm. engan mun á því að vita um eitthvað eða standa fyrir því? En það er eðli aumingja mannsins að klína á aðra svívirðingum og illmælgi. Þess vegna endurtekur hann hvað eftir annað — jeg hefi skrifað það hjá mjer 3 eða 4 sinnum —, að jeg hafi hlotið að vita um þetta, jeg hafi hlotið að vita það, hlotið, annars hefði jeg ekki farið að tala við Kristján Jónsson og varpað mæðinni, eins og hv. 1. landsk. lýsti svo fagurlega. Og hv. þm. ætlar að endurtaka þetta svo oft, að á endanum finnist mönnum jeg hljóta að hafa staðið fyrir þessu öllu. — En ástandið í Landsbankanum var þannig, þegar jeg kom þangað, að ekki var lögleg trygging fyrir einu einasta sjálfsskuldarábyrgðarláni, sem var eldra en eins árs. Það tók tvö ár að koma þessu í lag. Að vísu tapaðist ekkert út af þessu, en það hefði vel getað tapast stórfje fyrir þetta hirðuleysi í endurnýjun trygginganna.

Þá segist hv. 1. landsk. nokkrum sinnum verða að segja hitt og annað í „sannleikans nafni“. Mikið er að heyra. Þó að hv. sessunautur minn (JKr) gæfi mjer sterkasta uppsölumeðal, held jeg að mjer gæti ekki orðið meira flökurt en af því að heyra þennan mann tala um sannleika. Því að allir vita, að ekki getur hann gert greinarmun á því, hvort hann segir satt eða ósatt, þegar hann á við andstæðinga sína, og komi það fyrir, að hann segi satt og rjett frá einhverju, þá er óhætt að reiða sig á, að það er af hreinni tilviljun. — Ennþá hefi jeg skrifað hjá mjer: „í sannleikans nafni“. — Eru menn ekki hissa? — Svo kemur enn á ný, að jeg „hljóti“ að hafa vitað þetta, og loks kemur hv. þm. með það, að jeg hafi dregið þetta mál inn í umr. að ástæðulausu. Hvers vegna er hv. þm. þá að skifta sjer af þessu? Kemur honum þetta nokkuð við? Nei, ekki vitund. Jeg sagði satt og rjett frá þessu sögulega atriði, látlaust og án áreitni til hv. þm. Svona maður eins og hv. 1. landsk., sem ekkert hefir fylgst með málinu, nema kannske lesið hrafl af Alþt., getur ekkert um þetta talað af eigin þekkingu. Hann hlýtur því að hafa „vísdóm“ sinn annarsstaðar að. Og jeg veit það ósköp vel, að rógtunga þessa hv. þm. (Forseti hringir.) hefir sleikt þetta upp á óvirðulegum stöðum. Og tæplega verður að gera ráð fyrir, að hún fari á virðulega staði til að leita sjer næringar.

Svo er þetta mat, eða úttekt á bankanum, sem hv. 1. landsk. kallar rannsókn og leyfir sjer að líkja við ofsókn á hendur bankanum. Hvernig stóð þá á því, að hv. þm. bar í fyrra fram þáltill. á þskj. 241? Hvernig stóð á því, að hann, maður í bankaklíkunni, fór fram á rannsókn á útstrikunum Landsbankans á sumum af skuldum sínum? Mig langar til að lesa upp þessa till., ef hæstv. forseti leyfir:

„Tillaga til þál. um eftirgjöf á skuldum og ábyrgðum. Flm. Jónas Jónsson. Efri deild Alþingis skorar á ríkisstjórnina að skýra deildinni frá, hvort það er með hennar leyfi og samþykki, og ef svo er ekki, þá með hvaða heimildum, að tvær lánsstofnanir, sem standa beint og óbeint undir eftirliti landsstjórnarinnar, hafa gefið upp í tveim tilteknum tilfellum mjög stórar upphæðir. Þau atriði, sem skýrslu er óskað um, eru: — 1. Hin mikla uppgjöf útibús Landsbankans á Ísafirði. — 2. Uppgjöf á skuldum, ábyrgðum og vöxtum til handa firmanu Nathan og Olsen í Reykjavík af hálfu Landsbankans og Íslandsbanka“.

Svo mörg eru þau orð. Í fyrra var hv. 1. landsk. svo mikið niðri fyrir út af uppgjöfunum 1924, að hann gat ekki stilt sig um að koma með þessa till. Síðan hefir verið strikað út miklu meira af lánum, svo að nú hefði hv. þm. í raun rjettri átt að koma með þeim mun sterkar orðaða tillögu. En það fór nú svo um þessa till. í fyrra, að hv. þm. mun hafa fengið skipanir frá æðri stöðum um að láta hana aldrei koma á dagskrá, og þá gugnaði hann auðvitað. Nú stendur þannig í bólið hjá hv. þm., að honum finst ekki einu sinni þurfa að fara fram mat á bankanum áður en hann tekur við seðlaútgáfunni. Það er samkvæmni í hegðuninni! — Þá segir hann, að „þessi frægi pjesi“ (hann mun eiga við „Verslunarólagið“) hafi orðið til að skaða Landsbankann mikið, — þarna afklæddist orsökin til árásarinnar, „Verslunarólagið“ og sýknudómur hæstarjettar. — Jeg er þar á þveröfugri skoðun. Ef leiðbeiningar til bankans sjálfs og almennings geta ekki orðið til að bæta hag bankans, veit jeg ekki, hvað honum verður gert til heilla. Bæklingur minn var einmitt ritaður í því skyni að sýna fram á, að samábyrgðin er óbankahæf trygging, eins og reynslan hefir sýnt síðan, enda er hún hreinn kommunismi. Einu fjelagi hafa t. d. verið gefin upp 60–65% af skuldum sínum, afgangurinn mátti greiðast á 15 árum, öðru 50%, þriðja var veittur vaxtalaus gjaldfrestur í 10 ár á um 100 þús. kr.; fjórða fjelaginu vaxtalaus gjaldfrestur í 6 ár. Fimta fjelagið verður gjaldþrota og gefur aðeins fáar prósentur upp í skuldir sínar, o. s. frv. Samt er ekki gengið að fjelagsmönnum eða öðrum samvinnufjelögum, sem eru í samábyrgð við þetta. — Reynslan hefir orðið til að sýna, að orð mín voru í tíma töluð, og samábyrgðin er einskis virði fyrir bankann. Í lánum til samvinnufjelaga standa þó margar miljónir króna af fje bankans.

Eftir allan þennan skollaleik kemur það svo upp úr kafinu hjá hv. þm., að það sje ekki jeg, heldur hv. 6. landsk. (JKr), sem á hugmyndina um að láta hæstarjett útnefna menn í matsnefndina, og að jeg hafi aðeins fallist á hana. Þetta er rjett hjá hv. 1. landsk. — svona getur komið fyrir, að hann segi satt, — og hv. 6. landsk. gat þess um leið, aðeins til að stríða hv. þm. (JJ) og espa hann, að þetta væri gert til þess að koma í veg fyrir, að hann yrði í nefndinni. Vitanlega var þetta ekki alvarleg skoðun hans, heldur skoðun hans alment eins og mín, að þessi störf megi ekki verða þingbitlingar. (JJ: Getur hv. 6. landsk. ekki etið þetta ofan í sig sjálfur?).

Náttúrlega er það spaug hjá háttv. þm., að jeg sje svona ánægður með hæstarjett af því að hann hafi hlíft mjer við að borga 1.4 miljón króna í skaðabætur til Sambandsins. Það fór eins og við mátti búast, að jeg var sýknaður í því máli, nema mjer var dæmt að greiða óverulega sekt. En svo var hv. 1. landsk. laginn að skrifa, að hann fjekk sömu sekt fyrir frásögnina um þennan dóm. — Hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) hefir svarað dylgjunum um ósamræmi í hæstarjettardómum. Þarf jeg engu þar við að bæta. — Þá sagði hv. þm. (JJ), að hæstirjettur væri í ósamræmi við skoðun almennings. Þess hefi jeg aldrei orðið var. Það er þá fyrst nú, er þessi hv. þm. hefir spilt hugsunarhætti almennings í landinu, að slíks er farið að verða vart; en starfsemi hv. þm. hefir að miklu leyti miðað að því að spilla hugsunarhætti landsmanna og minka dómgreind þeirra á rjett og rangt.

Þá sagði hv. þm., að jeg væri farinn að iðrast „synda“ minna frá 1909. Jeg þarf ekki að fara frekar út í það mál nú; jeg hefi þegar fært nóg rök fyrir því, að þar hefi jeg skýrt satt og rjett frá öllu.

Þegar jeg heyrði ræðu háttv. 1. landsk., komu mjer í hug drög, sem jeg hefi gert til endurminninga um þingveru mína. Jeg var að blaða í þeim um daginn og tók þá eftir einu atriði. Þar stóð: „Jeg hefi aðeins þekt þrjá þm., af öllum þeim hóp, sem jeg hefi verið samtíða, sem altaf komu inn í þingsalinn í sínum daglegu, upp og niður hreinu „business“-fötum, sem þeir höfðu aldrei haft kjark nje vilja til að færa sig úr“. Jeg geri ráð fyrir, að hv. 1. landsk. kannist við einn þeirra.

Jeg hefi e. t. v. gleymt einhverjum atriðum, en þau geta þá komið fram við 3. umr. — Loks vil jeg segja það, að þetta er hið mesta vandamál, sem fyrir þessu þingi liggur. Ef hv. þm. vilja koma því í góða höfn, verða þeir að gleyma sjálfum sjer meðan á afgreiðslu þess stendur.

Jeg get ekki verið að svara hv. 2. þm. S.-M. (IP), því að alt, sem hann sagði, var mjög meinlaust, enda er hann meinlaus maður sjálfur og maður, sem jeg met mikils. Læt jeg svo staðar numið að sinni, en vænti þess, að hæstv. forseti gefi mjer leyfi til þess að gera stutta athugasemd síðar, ef þess gerist þörf, en nú er jeg „dauður“.