14.03.1927
Efri deild: 27. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (383)

66. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Jeg hefði getað látið vera að svara hv. 5. landsk. (JBald), því að hæstv. atvrh. (MG) hefir tekið að mestu fram það, sem jeg þurfti að segja. Það er rjett, að það láðist í allshn. að athuga þetta, og það er viðkunnanlegra, að þetta hvorttveggja falli burt: „sem verður 10. gr.“ og „Greinatalan breytist samkvæmt þessu“. Hæstv. ráðh. (MG) tók fram, hvernig mætti breyta þessu. Fyrir nefndinni vakti fremur efni en form frv. Hinu er jeg ósammála hv. 5.1andsk., að fara að prenta upp öll lögin, þótt smáviðauki sje samþ. við þau. Jeg tel það ekki ráðlegt að innleiða þá venju, og óvíst, að það yrði alment til þess, að menn gætu betur glöggvað sig á lögum þingsins. Það verður að fara gætilega í að prenta upp lög, sem gerðar eru smávægilegar breytingar á.