01.04.1927
Efri deild: 42. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (443)
31. mál, varnir gegn sýkingu nytjajurta
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Frumvarp þetta er komið frá háttv. Nd. og hefir landbn. haft það til meðferðar. Nefndin getur fallist á meginatriði frv. og leggur því til, að það nái fram að ganga. Hinsvegar þótti henni rjett að koma fram með þrjár brtt. við það, og eru þær á þskj. 268.
1. brtt. er við 1. gr. og er í því fólgin, að í stað orðanna „atvinnumálaráðuneytinu er heimilað“ komi „atvinnumálaráðuneytið skal“. Nefndin leit svo á, að rjett væri, að það kæmi fram, að hún ætlast til, að þær ráðstafanir verði gerðar, sem í frv. er farið fram á.
2. brtt., sem er við 3. gr., er þess efnis, að þar eru taldir upp nokkrir starfsmenn, sem launaðir eru af fje ríkisins og ráðuneytinu er benti á að kveðja sjer til aðstoðar viðframkvæmd þessara laga. Nefndinni fanst rjett að setja þetta inn í lögin, því að annars mætti líta svo á, að stjórninni væri heimilt að skipa sjerstaka menn til þess að hafa eftirlitið. En það gæti leitt til óþarfakostnaðar. Nefndin vildi með þessu fyrirbyggja, að ríkissjóður yrði fyrir auknum útgjöldum. Að öðru leyti verður 3. gr. alveg óbreytt.
Þá er loks 3. brtt., við 5. gr., og er í því fólgin, að þar er tekið sterkara til orða en í frumvarpinu. í stað orðanna „ákveða má í reglugerð“ komi „í reglugerð skal ákveða“.
Brtt. þessar eru í sjálfu sjer ekki mikilvægar. Jeg skal taka það fram um fyrstu og síðustu brtt., að þær miða að því, að það komi ótvírætt í ljós, að nefndin ætlast til, að lög þessi komi til framkvæmda strax, en verði ekki skoðuð sem heimildarlög eingöngu. Er svo ekki ástæða til að fjölyrða meira um frv., nema tilefni gefist. Get jeg því látið þessa framsögu nægja.