07.03.1927
Efri deild: 21. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í B-deild Alþingistíðinda. (451)

68. mál, sýsluvegasjóður

Flm. (Jónas Kristjánsson):

Lög þau, er hjer er farið fram á að breyta, eru viðaukalög við heimildarlög fyrir sýslunefndir til þess að setja ákveðinn skatt á fasteignir, eitthvert ákveðið þúsundgjald, til þess að gera sýsluvegi. Leggur svo ríkið fram ákveðna upphæð á móti, eftir því, hve hátt gjald sýslufjelagið leggur á sig, eða með öðrum orðum, eftir því, hve hátt þúsundgjald er lagt á fasteignir innan sýslunnar, og tiltölulega hærri upphæð, eftir því sem hreppar sýslunnar leggja hærra þúsundgjald á fasteignir hjá sjer. Er þeim það í sjálfsvald sett, hvað þeir hafa þetta þúsundgjald hátt, en freistingin til þess að hafa það hátt er mikil, bæði vegna framlagsins frá ríkissjóði og ekki síður vegna hins, að vegaþörfin er bráð og aðkallandi, en sýslur eru víða því sem næst vegalaust land.

Heimildin, sem gefin er í 1. nr. 22, 4. júní 1924, til þess að greiða skattinn úr sveitarsjóði, eða jafna honum niður eftir efnum og ástæðum, er bæði sanngjörn og sjálfsögð. En eins og nú er, kemur þessi heimild ekki að notum. í ýmsum hreppum, einkum kauptúnahreppum, eru ýms fjelög, sem eiga húseignir, eða jafnvel aðrar fasteignir, en eru ekki útsvarsskyld, svo sem ungmennafjelög, málfundafjelög, templarastúkur o. s. frv. Sumar húseignir eru líka eign utanhreppsbúa. Samvinnufjelög í kaupstöðum eru og víða eigendur stórra húseigna og lóða, en greiða þó ekki útsvar eftir sömu reglu og aðrir gjaldendur, heldur miklu lægra.

Allir þessir gjaldendur hafa fylstu þörf vega, ekki síður en aðrir, en eru ekki skyldir að greiða skattinn, sje heimild viðaukalaganna notuð. Getur þetta þannig orðið til þess að fyrirmuna ýmsum hreppum að nota heimild þá, er viðaukalögin nr. 22, 4. júní 1924, gefa, nema með því móti að skaða sveitarsjóð eða leggja auknar byrðar á aðra gjaldendur, sem þá verða að jafna niður á sig gjaldi fyrir ýmsa, sem færir eru um að greiða skattinn, en lagaheimild nær ekki til. Þannig geta hreppar neyðst til þess að jafna gjaldinu niður sem þúsundgjaldi á húseigendur, en það getur komið bæði ranglátlega og óverðuglega niður á mörgum. Ranglátlega að því leyti, að ýmsir sleppa við skatt, sem vel gætu borið hann, svo sem vel stæðir einhleypingar, sem eiga húseign og greiða litla eða enga húsaleigu. Annarsvegar eru margir svo nægjusamir með húsakynni sín, að þeir búa í ljelegum hreysum, sem lítið fje kosta, og greiða þess vegna lágan skatt, þótt þeir sjeu sæmilega efnaðir. Óverðuglega kemur skatturinn niður á fátækum fjölskyldumönnum, sem vegna ómegðar eiga erfitt uppdráttar, en beita sjer af megni til þess að fullnægja nauðsynlegustu lífskröfum og þroskaskilyrðum, m. a. með því að hefja sig með barnahópinn úr þröngu og óhollu leiguhreysi upp í sæmileg húsakynni. Það er óverðugt og ósæmilegt að íþyngja þessum mönnum með háum skatti til vega, sem margir aðrir miklu færari eru ekki látnir greiða, eða leyft að sleppa við, ef þeir eru nœgjusamir með ljeleg húsakynni. Hin bættu og dýrari húsakynni eru oft að miklu leyti í skuld, og því ósanngjarnt að bæta háum skatti þar á ofan.

Sama má segja um ýmsa fátæka búendur, þar sem reistar hafa verið dýrar byggingar. Á þeim kemur skatturinn mjög tilfinnanlega niður.

Hinsvegar verður að viðurkenna, að þessi skattlagning til útvegunar fjár til umbóta á sýsluvegum er afar nauðsynleg, því umbætur vega, sjerstaklega akfærra vega, verða að teljast hin bráðasta nauðsyn og beint skilyrði til búnaðarframfara. En hins verður jafnframt að gæta, að skattlagningin komi sem rjettlátast niður, og til þess er ætlast með þessari lagabreytingu. Enginn vafi er á því, að ljeleg húsakynni eiga allmikinn þátt í hinni mögnuðu berklaveiki hjer á landi, og má síst gera þeim erfitt fyrir fæti, sem af veikum mætti leitast við að bæta húsakynni sín.

Að svo mæltu legg jeg til, að frv. verði vísað til samgmn.