07.03.1927
Efri deild: 21. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (455)
68. mál, sýsluvegasjóður
Einar Árnason:
Hv. 2. þm. Rang. (EJ) vill halda því fram og hefir ekkert við það að athuga, að skattur af húseignum í sveitum sje sanngjarn grundvöllur undir gjaldinu til sýsluvegasjóðanna. Jeg held því fram, að slíkur skattur sje ranglátur og grundvöllurinn óheilbrigður. Hv. þm. (EJ) viðurkendi þetta að nokkru leyti, þar sem hann vildi hafa lægri skatt af húseignum en jörðum. En ef leggja ætti til grundvallar fasteignir sveitanna, yrði að taka tillit til stærðar landsins og afurðamagns. Þó fengist ekki algerlega rjettur grundvöllur á þann hátt. Það yrði líka að taka tillit til þess, hve mikil not jörðin hefði af veginum. En það er ekki hægt, Því fæst engin grundvöllur rjettlátari en sá, að jafna niður eftir efnum og ástæðum. Það eru ekki altaf efnuðustu bændurnir, sem búa á stóru jörðunum. Og stundum búa efnaðir bændur á litlum jörðum. Menn reka sig altaf á einhvern agnúa, þegar finna á sanngjarnan grundvöll. Og annar grundvöllur verður ekki fundinn sanngjarnari en sá, að þeir borgi, sem efnin hafa.