25.03.1927
Efri deild: 36. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í B-deild Alþingistíðinda. (514)
85. mál, friðun hreindýra
Einar Árnason:
Jeg get þakkað hv. allshn. fyrir meðferð hennar á þessu frv. Jeg sje á nál. hennar, að hún hefir fallist á, að rjett sje að friða hreindýr enn á ný, í von um, að þessi dýr geti enn um stund lifað og fjölgað. Þótt ekki hafi blásið byrlega fyrir þessum litla hreindýraflokki að fjölga undanfarið, er ekki útilokað, að betur takist í framtíðinni, og gæti komið til mála að hann yrði landsmönnum að einhverju gagni.
Jeg get fallist á það hjá háttv. 6. landsk. (JKr), að dýrunum geti fjölgað, þótt drepið sje eitthvað af karldýrunum. Má vera, að það hafi ekki mikil áhrif. En jeg held, að það verði örðugt í framkvæmdinni að gefa leyfi til að skjóta einstök dýr. Það er hætt við, að farið verði út yfir hin settu takmörk.
Hv. þm. (JKr) mintist á, að nauðsynlegt væri að setja vörð, til þess að hafa eftirlit með því, að ekki yrði drepið annað en karldýr. En jeg er hræddur um, að þeir yrðu að vera æðimargir eftirlitsmennirnir, því að dýrin eru dreifð yfir mikið svæði. Eftir því, sem kunnugir segja, eru þau dreifð um Austurlandsöræfin, frá Jökuldal suður að Álftafirði. Auk þess eru þau eitthvað vestan Jökulsár á Mývatnsöræfum, og eru jafnvel dæmi þess, að þau hafi komið niður í Fnjóskadal. Þá er og talið, að þau sjeu á Reykjanesskaga. Nú mætti búast við, ef leyft væri að skjóta hreindýr, að ýmsir mundu reka það sem sport. Eftirlitið yrði þá víst í því fólgið að fylgja þessum mönnum á veiðar og benda þeim á, hvaða dýr þeir mættu skjóta. Slíkur eftirlitsmaður yrði að fá talsverða borgun, og þó að veiðimennirnir yrðu að greiða honum dagkaup, mundi það ekki nægja. Hann yrði að fá föst laun úr ríkissjóði. Jeg býst líka við, að menn yrðu fremur ófúsir á að taka að sjer þann starfa að fylgja þessum veiðimönnum um fjöll og firnindi, eftir því sem þeim þóknaðist. — Jeg held, að þetta yrði nokkuð örðugt í framkvæmd og við ekki við því búnir að koma slíku skipulagi á. Mjer sýnist því engin ástæða til að hika við að friða hreindýrin eins og þetta frv. fer fram á. Mætti þá athuga síðar, hvort ráðlegt þætti að rýmka eitthvað til í þessu efni.