05.04.1927
Neðri deild: 47. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (524)
85. mál, friðun hreindýra
Halldór Stefánsson:
Jeg flyt hjer brtt. á þskj. 289, ásamt háttv. 2. þm. N.-M. (ÁJ), sem jeg ætla að víkja að nokkrum orðum. Til þess að geta gert grein fyrir þeim, tel jeg nauðsynlegt að gera stutt yfirlit yfir sögu hreindýranna hjer á landi.
Hreindýr eru flutt hingað til landsins 1776, 20–30 dýr, að því er talið er. Stóð svo um 70 ára skeið, að jeg veit ekki, hvort þau hafa verið friðuð eða ófriðuð. Um miðja 19. öld er farið að kvarta yfir usla á högum í bygð af völdum hreindýra, talið, að þau gangi í stórhópum niður í bygð og eyðileggi land það, er þau ganga á. Á þessum tíma hefir þeim því sýnilega fjölgað mikið. Afleiðing af þessu var svo tilskipun, sem gefin var út 1849, og er þar svo fyrir mælt, að hreini megi elta og veiða hvar sem er. Það kemur fram í nefndaráliti undir meðferð málsins, að það hafi verið margreynt að temja hreindýr, en aldrei hepnast, því að þau hafi annaðhvort veslast upp í fóðrinu eða hlaupið á fjöll þegar voraði. Frá 1849 til 1881 stóð svo í lögum, að hreina mætti elta og veiða hvar sem væri, en 1881 fara menn að hugsa um að friða þá, því að þá hefir þeim þótt vera farið að fækka svo mjög. Eru þeir þá friðaðir ásamt fuglum, og er friðunartíminn ákveðinn frá 1. janúar til 20. ágúst ár hvert, og gengu þessi lög í gildi 1882.
Jeg hefi litið yfir umræðurnar um þetta mál 1881, og er þar litlar upplýsingar hægt að fá. Aðalástæðan, sem færð er fram fyrir friðuninni, er sú, að það sje mjög farið að tíðkast, að Englendingar ferðist um landið og hafi það fyrir sport að skjóta hreina, jafnt kýr og kálfa sem tarfa, en það þykir óhæfa. Stendur þetta svo í 20 ár, frá 1882 til 1902, að dýrin eru friðuð meiri hluta ársins. En síðan hafa þau verið alfriðuð til nokkurra ára í senn. Þó hygg jeg, að þau hafi verið ófriðuð fyrri hluta ársins 1919, og nú síðan 1. janúar 1926 hafa þau verið ófriðuð, eins og tekið er fram í ástæðunum fyrir frv. þessu.
Þegar frv. um friðun dýranna var borið fram 1902, var það ekki meiningin í fyrstu að alfriða þau, heldur snerist það svo í meðferð þingsins, en þá er jafnframt gert ráð fyrir að breyta til aftur, þegar dýrunum fjölgar. Á umr. um málið þá sjest, að þá hafa verið hreinar á Reykjanesfjallgarði, sem nú munu vera nær eða alveg horfnir.
Aðalástæðan fyrir friðuninni 1902 er ekki ásælni Englendinga, heldur er hún talin sú, að nú eru dýrin talin í mikilli hættu fyrir veiðilöngun mannanna, sjerstaklega eftir að menn höfðu fengið sjer rifla til þess að skjóta þau með; líka væri veiðiaðferðin ómannúðleg, þar sem skotið væri á hópa, og því drepnar jafnt kýr og kálfar sem karldýr, en önnur særðust og dræpust síðan.
Reynslan hefir nú orðið sú, að þrátt fyrir alfriðun í 24 ár, hefir dýrunum ekki fjölgað að líkum. Nú eru þau aðeins á öræfunum norður af Vatnajökli, austarlega, aðallega austan Jökulsár á Fjöllum, á milli hennar og Jökulsár á Dal, kringum Snæfell og enn sunnar, suður að Hofsjökli eystri og Þrándarjökli, og ef til vill eitthvað lítilsháttar norðan Jökulsár á Fjöllum, en þar eru þau þó ekki að staðaldri.
Þar sem nú jafnlöng alfriðun hefir ekki borið þann árangur, sem hefði mátt vænta, þá lítur út fyrir, að eitthvað annað en mannshöndin eigi hjer hlut að máli, og er þá næst að geta þess til, að óblíða náttúrufarsins eigi sinn drjúga þátt í því, að dýrunum fjölgar ekki meira. Eins og kunnugt er, hafast þau mest við uppi við jökla og lifa að miklu leyti á mosum og skófum, en þrífast illa á grasi eingöngu. Þegar þar gerir jarðlaust fyrir snjódýpt eða áfrera, hrekjast þau út á heiðar og ofan í bygðir og verða að gera sjer að góðu graslendið eitt, samfara skorti á nægri beit, en þá megrast þau og falla. Auk þess verða þau fyrir ýmiskonar slysum á þessum hrakningi, fara í vötn, hrapa í fjöllum o. fl. Aðra orsök hefi jeg heyrt tilnefnda, sem ef til vill eigi sinn þátt í því, að dýrunum fjölgar ekki meira. Hún er sú, að tarfarnir sjeu tiltölulega of margir, fleiri en hagkvæmt sje fyrir viðhald og fjölgun stofnsins. Þeir eru harðgerðari í baráttunni fyrir lífinu en kvendýrin, svo að líklegt er, að þeim fjölgi meira. Jeg hefi heyrt nýlega, að eitt af þeim ráðum, sem notuð hafi verið í Noregi norðanverðum til þess að fjölga dýrum þessum, hafi verið það, að fækka törfunum hæfilega. Er talið hæfilegt, að nokkur kvendýr sjeu fyrir hvert karldýr, til þess að kvendýrin hafi meira næði, því eins og gefur að skilja, gera tarfarnir þeim mikið ónæði og hrakninga, þegar þeir eru miklu fleiri, og jafnvel, að kýr og kálfar hafi drepist af þeim ófriði og hrakningum, sem of mörg karldýr valda, bæði á brundtíðinni og á vorin.
Mjer sýnist nú, að svo framarlega sem mönnum er ant um, að hreindýrunum fjölgi, þá eigi að breyta til. Á því eru bygðar till. okkar flm. Leggjum við til að setja umsjónarmenn með veiðinni, svo marga, sem hæfilegt þykir. Þeir leyfðu ekki veiði nema þeir teldu það óhætt vegna stofnsins, og settu þau takmörk fyrir veiðinni, sem þeir teldu þurfa, svo sem veiðitíma — líklega aðeins fyrir eina veiðifor í senn — á hvaða svæði mætti veiða, hve mörg dýr mætti veiða og hve mörg af hvoru kyni fyrir sig; bannað væri að skjóta í hópa og á kálfa. Með þessu er líklegt, að næðist betri árangur en með alfriðun. Það fengist betri vitneskja um lifnaðarhætti, fjölgun og útbreiðslu dýranna. Meiri áhugi myndi vakna fyrir þrifum og fjölgun stofnsins, er menn sæju, að dýrin væru ekki eingöngu friðuð til þess að falla í hörðu árunum.
Brtt. þessar eru ekki bornar fram af því við þykjumst ekki hafa eins mikinn áhuga á viðhaldi og þrifum þessa dýrastofns eins og aðrir, heldur til þess að leita annara skynsamlegra leiða, sem líklegar eru til að bera betri árangur en 24 ára reynsla alfriðunarinnar hefir borið.
Skal jeg svo ekki fjölyrða mikið frekar um þetta mál nú. Við flm. þessara brtt. höfum lagt þær fram til athugunar fyrir hv. þm. og væntum þess, að þeir geti fallist á þær, því að það hefir aldrei verið meiningin að friða hreindýrin endalaust, heldur þvert á móti altaf verið í hugum manna að leyfa að veiða þau, þegar þau væru svo mörg, að það yrði að teljast óhætt. Líka er hugsanlegt, að þessi ráðstöfun gæti orðið til þess að dreifa dýrunum um öræfin norðan Vatnajökuls, en það gæti orðið betra fyrir þau sjálf, t. d. í vetrarhörkum, því að með því móti hefðu þau stærra land til þess að bjargast á.