28.04.1927
Neðri deild: 61. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í B-deild Alþingistíðinda. (533)
85. mál, friðun hreindýra
Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):
Jeg þarf nú ekki að svara mörgu. Jeg er ekki á sömu skoðun og hv. frsm. minni hl. (ÁJ), að það beri ekki mikið á milli. Við, sem skipum meiri hl., óttumst, að ef veiðiheimildin verður samþykt, þá verði hreindýrin algerlega upprætt, og þess vegna viljum við hafa þau alfriðuð. Jeg geri ekkert úr eftirlitinu, sem minni hl. vill hafa. Það er hægra sagt en gert að láta slíkt koma að haldi. Og þó að hægt væri að koma því svo fyrir, að menn misnotuðu ekki þessa veiðiheimild, þá gæti það samt orðið til þess að uppræta stofninn. Það er hætt við, að forustudýrin verði helst fyrir skotum veiðimanna, þar sem þau halda sjer vanalega utan við hópinn. Þau ráða ferðum hans og eru kunnugust. En ef þau eru drepin, þá er hinum dýrunum líka stefnt í hættu, er þau eru orðin forustulaus. (HStef: Í hvaða hættu?). Í hættu, sem stafar af margskonar tálmunum og erfiðleikum uppi á öræfum. Jeg veit vel, að háttv. 1. þm. N.-M. (HStef) hlýtur að þekkja þetta. En hann hefir nú kannske búist við, að jeg þekti þetta ekki; en það er misskilningur hjá honum. Jeg býst helst við, að hv. þm. (HStef og ÁJ) flytji þessar brtt. fyrir þá menn, sem stunda vilja hreinaveiðar, en ekki í þeim tilgangi að halda hlífiskildi yfir dýrunum. En jeg ætla nú ekki að fjölyrða um það.
Jeg er sammála háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) um það, að ekki þurfi að gera ráð fyrir því, að hreindýrin falli oft. En það, að þeim fjölgar svona seint, kemur bara af því, að viðkoman er nú ekki örari en þetta. — Viðvíkjandi þeirri heimild, sem hv. þm. (SvÓ) vill setja í frv. um það að leyfa mönnum að veiða dýr til eldis, get jeg sagt það, að hún skiftir í rauninni ekki miklu máli, ef sú leið verður ekki misnotuð. En mjer er ekki grunlaust um, að hún kunni að verða misnotuð. (SvÓ: En jeg geri nú varla ráð fyrir því, að menn nenni að eiga við það). En þá væri þessi heimild alveg tilgangslaus. Jeg tel því óþarfa að setja þetta í lögin, sjerstaklega þar sem hv. þm. (SvÓ) hefir sagt, að ekki mundi kannske neinn verða til þess að gera þessa tilraun. Til hvaða gagns er þetta þá?
Hv. þm. (SvÓ) drap líka á það, að hagar inni á heiðum væru nú verri en áður og því gengi fjölgun stofnsins svona seint. Það mun nú vera talsvert rjett í þessu. En því síður er þá ástæða til þess að vera að ala hjer upp hreindýr, því að við höfum ekki nægilegt víðlendi til þess. Það er svo fjarri því, að þetta komi til greina, að það er óþarfi að vera að ræða það. Hjer eru engin skilyrði til hreindýraræktar. Þau þurfa alveg sjerstakan gróður, sem ekki er til hjer á landi nema að litlu leyti.
Jeg vænti svo þess, að hv. deild samþ. frv. óbreytt, enda mun það vera besta lausnin á málinu.