30.04.1927
Efri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í B-deild Alþingistíðinda. (606)

110. mál, akfærir sýslu- og hreppavegir

Frsm. (Einar Árnason):

Lögin frá 1919, sem hjer er verið að breyta, eru heimildarlög fyrir sýslunefndir til að gera samþyktir fyrir stærri eða minni svæði innan sýslu um framlag til akfærra sýslu- og hreppavega. Þetta framlag þarf ekki að vera bundið við hámark vegalaganna, og má leggja það á eftir jarðardýrleika eða lausafjáreign, og samkvæmt því verða það eingöngu ábúendur jarðanna og eigendur lausafjár á samþyktarsvæðinu, sem greiða gjaldið, en allir aðrir sleppa. Þessi breyting, sem hjer liggur fyrir, er eingöngu þess efnis að opna leið til þess, að þessu gjaldi megi hreppsnefnd jafna niður með útsvörum eftir efnum og ástæðum.

Samgmn. hefir athugað frv. og felst á það, að þessi breyting sje rjettlát og sanngjörn, og mælir með því, að frv. verði samþykt.