06.05.1927
Neðri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (646)

123. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar

Frsm. (Árni Jónsson):

Mjer kemur dálítið á óvart, að háttv. 4. þm. Reykv. (HjV) snýst svo hart móti þessu frv. nú, því að hann hefir skrifað undir nál. allshn. Að vísu var það með fyrirvara; en ef þetta er beinlínis spilavíti, þá skil jeg ekki, hvers vegna hann skrifaði undir með nefndinni.

Annars ætla jeg ekki að fara frekar út í þetta, aðeins geta þess viðvíkjandi till. frá hv. þm. V.-Sk. (JK), að nefndin hefir ekki borið sig saman um hana; en jeg lýsi yfir fyrir mitt leyti, að jeg álít það sje vert að samþykkja hana.