14.05.1927
Efri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (665)
123. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Það er farið að slá dálítið út í fyrir hv. 5. landsk. (JBald), því í öðru orðinu talar hann á móti þessari veðmálastarfsemi, en í hinu fárast hann yfir því, að hún skuli ekki geta náð um land alt. Það fer nú svona oft, þegar menn eru eingöngu að tala sjer til skemtunar, að þeir gleyma í öðru orðinu, hvað þeir sögðu í hinu, og svo kemur alt hvað á móti öðru.
Þá spurðist háttv. þm. fyrir um það, hvort skemtanaskattur ætti ekki að borgast af því, sem inn kæmi við kappreiðarnar. Þessu er því að svara, að mjer er kunnugt um, að aðgangur hefir verið seldur að kappreiðunum, en mjög erfitt reynist að hafa nægilegt eftirlit með innheimtu hans, svo að margir hafa ekkert borgað, og kemur skemtanaskattur þar því naumast til greina.
Þá var hann hræddur við reglugerð þá, sem ráðherra á að setja um þessa veðmálastarfsemi, og sagðist ekki vita, hver undur kæmu úr penna ráðherrans, þegar hann færi að semja hana. Jeg er nú þeirrar skoðunar, að þar sem þetta er aðeins leyft um mjög takmarkaðan tíma, þá geti engin ósköp skeð. Og fari svo, að eitthvað ilt hljótist af þessu, þá verður þessi starfsemi ekki leyfð lengur. Annars held jeg, að það sje á einskis manns færi að koma með frv. um þetta svo honum líki.
Það sýnir sig best, hvað þetta er alt leikkent hjá háttv. þm., þegar hann, sem telur sig vera á móti málinu, fer fyrst að hugsa um að koma með brtt. við það, þegar á að fara að greiða atkvæði við 3. umr. Svo býst jeg við, að hann eigi eftir að koma með brtt. við dagskrána, sem hann var að flytja, svo það má búast við, að við verðum að bíða dálítið eftir honum enn. (EÁ: Það verður að framlengja þingið, til þess að háttv. 5. landsk. fái tíma til að hugsa málið). Jeg get alveg eins búist við því. Enda þótt tíma þingsins væri kannske betur varið til einhvers annars.