14.05.1927
Efri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í B-deild Alþingistíðinda. (667)
123. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Hann er góður til þess að vekja mann þessi háttv. þm. En jeg get ekki snúið aftur með það, að hann hefði getað komið með brtt. sínar við 2. umr., en að fara að koma með þær nú, þegar búið er að slíta umræðunum, nær engri átt. (JBald: Það er ekki búið að slíta þeim). Ja, mjer hefir skilist það, en ef svo er ekki, þá erum við líkir í því að segja báðir ósatt.