13.04.1927
Efri deild: 52. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í B-deild Alþingistíðinda. (680)

109. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Fjhn. hefir haft mál þetta til athugunar, og voru lagðir fyrir hana uppdrættir, áætlanir og fleiri plögg, sem að því lúta.

Þegar nefndin hafði kynt sjer málið, voru allir nefndarmenn sammála um nauðsyn þess. Einkum þó að því leyti, að þessi höfn njóti góðs af dýpkunarskipi því, sem von er á til landsins á þessu ári. Hinsvegar voru deildar skoðanir um það, hve mikið framlag ríkissjóðs ætti að vera í þessu skyni. Og var meiri hluti nefndarinnar sammála um, að upphæð sú, sem nefnd er í frumvarpinu, sje of há. En tveir nefndarmennirnir, sem álíta framlag ríkissjóðs ekki vera of hátt samkv. því, sem ætlast er til í frv., álíta samt ekki rjett að gera ágreining vegna þess, þar sem nefndin er að öðru leyti sammála.

Jeg sje svo ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta nú, en vænti fastlega, að hv. deildarmenn lofi málinu fram að ganga. Legg jeg svo til fyrir hönd nefndarinnar, að frv. verði samþykt óbreytt eins og það liggur fyrir á þskj. 309.