17.05.1927
Sameinað þing: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3637 í B-deild Alþingistíðinda. (69)

Dansk-íslensk ráðgjafarnefnd

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil leyfa mjer að mæla með því, að farið verði eftir óskum Dana í þessu efni, því fremur sem jeg veit, að það er íslenskum málstað fyrir bestu að fallast á þessa breytingu. Jeg vil eigi fara út í rökræður um málið að þessu sinni, en jeg þykist vera svo kunnugur, að jeg megi fullyrða, að íslenskur málstaður stendur lakar að vígi, ef þessari ósk verði eigi gaumur gefinn.