21.02.1927
Neðri deild: 11. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í B-deild Alþingistíðinda. (703)
14. mál, óskilgetin börn
Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Jeg vil leyfa mjer að þakka hv. allshn. skjóta afgreiðslu þessa máls, og sje jeg ekki ástæðu til að gera ágreining um brtt. hv. nefndar. Jeg vil aðeins taka fram, að það var ekki ætlun stjórnarinnar, að frv. þetta ætti að ganga út yfir börnin, heldur ætti að leggja framfærsluskylduna á hendur móðurinnar um þessi tvö ár, þegar framfærslu þyrfti á annað borð. — Það kemur sjaldan fyrir, að gefa þurfi með börnum eftir 14 ára aldur, og þá sjaldan það á sjer stað, ætti móðurinni ekki að vera það um megn. Með þessu frv. hefir aðstaða barnsmæðra batnað svo, að stjórnin áleit, að eitthvað mætti taka frá þeim í staðinn. En þetta er ekki verulegt atriði, og það því síður, sem vænta má meira samræmis um meðlögin nú en áður.
Það að samræma meðalmeðgjöfina er aðalatriðið í þessu frv. Er hægt að sýna þess dæmi, að meðlög í næstu sýslum hafa verið mjög ósamræm, og er það varla að furða, þegar þau eru ákveðin af 18 stjórnarvöldum, sem ekki geta borið sig saman.