30.04.1927
Efri deild: 62. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í B-deild Alþingistíðinda. (737)
50. mál, vörn gegn berklaveiki
Guðmundur Ólafsson:
Háttv. frsm. (JJós) hefir skýrt fyrir hv. deild, í hverju fyrirvari minn liggur. Jeg lít svo á, að þó að þetta frv. gangi fram, þurfi það ekki að tefja fyrir endurskoðun laganna. Jeg álít, að í frv. felist mikil bót frá því, sem nú er. Það er að fara aftan að siðunum að láta sýslufjelög borga allan kostnaðinn fyrst, þegar ríkissjóður á að borga meiri hlutann á eftir. En sá, sem borgar meiri hlutann, á eftir frv. að borga alt fyrst, og svo kemur á vissum tíma borgun sýslufjelaganna til greina.
Það skiftir að vísu ekki miklu máli, hvort þetta verður samþykt nú eða ekki, ef hægt væri að eiga það víst, að endurskoðun laganna verði framkvæmd fyrir næsta þing, en þó að þá kæmi fram frv. um þetta efni, er ekki alveg víst, að það yrði að lögum.
Þó að jeg vilji síst gera lítið úr því, að endurskoðun berklavarnalaganna sje nauðsynleg, held jeg, að sú endurskoðun mundi ekki verða á þá leið, að þetta yrði ekki eftir sem áður tilfinnanlegur kostnaður fyrir þjóðfjelagið. Strax 1921, þegar lögin voru samþ., óaði mjer sá kostnaður, sem af þeim mundi leiða, þó væri þetta sök sjer, ef nokkuð það hefði komið í ljós, sem sýndi, að löggjöfin hefði komið að tilætluðum notum, sem sje að draga úr berklaveiki hjer á landi. En jeg man ekki, að neitt hafi komið fram, sem bendi í þá átt, að svo hafi verið. En sem sagt álít jeg hættulaust fyrir hv. deild að samþ. þetta frv. hvað það snertir, að það ætti ekki að þurfa að tefja fyrir endurskoðun berklavarnalaganna.