17.05.1927
Sameinað þing: 12. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 3642 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
Dansk-íslensk ráðgjafarnefnd
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg býst ekki við, að hjer stoði mótmæli mikið, þar sem kunnugt er, að báðir höfuðflokkar þingsins hafa tekið höndum saman um að samþ. atriði það, sem hjer er um að ræða.
Jeg get tekið undir það, sem hv. þm. N.-Þ. (BSv) og hv. þm. Borgf. (PO) hafa sagt, að það sje með öllu óþarft að fjölga mönnum í þessari nefnd. Að vísu er svo fyrirskipað, að nefndarmenn megi vera 4, en okkur ber engin skylda til þess að samþykkja það.
Því hefir verið haldið fram, að nefndin hafi verið hlutlaus í störfum sínum og ekki gengið inn á íslenska löggjöf. Þetta má ef til vill til sanns vegar færa, en þar með er ekkert sagt um það, að þetta geti ekki breyst í framtíðinni. Nú hefir einmitt sá flokkurinn, sem okkur hefir reynst þyngstur í skauti í baráttunni við Dani, óskað eftir, að fjölgað væri í nefndinni, og væri þá ekki loku skotið fyrir það, að hann á sínum tíma færi að hlutast til um okkar mál. Þess vegna vil jeg fyrir mitt leyti ekki eiga undir því, og mun því greiða atkv. móti fjölgun.
Það er rjett hjá hv. þm. Borgf., að í upphafi var lítið gert úr þessari nefndarskipun, eða væntanlegum störfum hennar. Að hún komst á, var af tilhliðrunarsemi við Dani, enda búist við, að hún yrði áhrifalaus. Nú virðist mjer alt benda til þess, að frá sjónarmiði Dana sjeð eigi nefndin ekki að vera áhrifalaus lengur, heldur ætli þeir sjer eftirleiðis að hlutast til um íslenska löggjöf. Þess vegna tel jeg skyldu mína að standa á móti þessu, og það því fremur, sem með þessu er verið að læðast aftan að íslenskum kjósendum og svíkja að þeim forspurðum fjórða manninn inn í nefndina. Eftir því sem fleiri Danir skipa þessa nefnd, því meiri áhrifa má búast við frá þeim um íhlutun íslenskra mála. Þá stefnu vil jeg ekki styðja og mótmæli því eindregið, að fjölgað verði mönnum í nefndinni.