12.05.1927
Neðri deild: 73. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (760)
50. mál, vörn gegn berklaveiki
Frsm. minni hl. (Jón Kjartansson):
Þegar mál þetta var hjer til umræðu áður, þá lagði jeg á móti því, að það væri samþykt, og var tillaga mín um að vísa því til stjórnarinnar feld.
Frv. þessu hefir töluvert verið breytt í hv. efri deild, og tel jeg þær breytingar, sem á því hafa verið gerðar, tvímælalaust til bóta. Get jeg því látið málið afskiftalaust eins og það nú er. Jeg hefi þó flutt brtt. á þskj. 563, við 4. gr. þess. Í greininni eins og hún er nú er svo ákveðið, að lög þessi öðlist gildi 1. jan. 1928. Þessu vil jeg breyta þannig, að lög þessi öðlist gildi þegar í stað, en komi ekki til framkvæmda að því er snertir greiðslur sýslu- og bæjarfjelaga upp í berklavarnakostnað fyr en 1. jan. 1928. Verði þessi brtt. mín samþykt, þá er ekkert því til fyrirstöðu, að í ár verði gefin út reglugerð sú, sem getið er um í frv. En það er nauðsynlegt, til þess að sveitar- og bæjarstjórnir hafi áttað sig á breytingum þessum áður en þær koma til framkvæmda.
Þá hefi jeg líka lagt til að fella úr 4. gr. frv. ákvæðið um að fella lög þessi inn í texta laganna frá 27. júní 1921. Jeg tel það óþarft, þar sem frv. þetta er svo að segja alveg sjálfstætt. Auk þess er töluverður kostnaður við að prenta lagabálkinn alveg upp.
Jeg fæ því ekki annað sjeð en að brtt. mínar sjeu að öllu leyti til bóta.