12.05.1927
Neðri deild: 73. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (762)

50. mál, vörn gegn berklaveiki

Klemens Jónsson:

Jeg hefi ekki neitt sjerstakt að athuga við brtt. á þskj. 563. Jeg get vel tekið undir það, að rjettara sje að láta lögin ekki koma til framkvæmda að því er snertir greiðslur bæjar- og sýslufjelaga vegna berklavarnakostnaðar fyr en 1. jan. 1928.

Jeg leit svo á í fyrstu, að brtt. ætti aðeins við fyrri málslið 4. gr., en nú hafa þeir háttv. þm. V.-Sk. (JK) og hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) upplýst, að hún eigi við alla greinina, og sje það gert af sparnaðarástæðum, til þess að þurfa ekki að prenta lögin sjálf upp. Jeg geri nú hreint ekkert úr þessari sparnaðarástæðu, því að það kostar sáralítið að prenta lögin upp. En aftur á móti er það miklu betra að hafa lögin í einni heild en sundurdreifð, eins og er um fjölda af gildandi lögum, því að það er komið svo, að jafnvel lögfræðingar geta ekki áttað sig á, hvað eru gildandi lög og hvað ekki. Jeg álít það því skemd á frv. þessu, ef ekki á að fella það inn í lögin sjálf, og mundi hafa komið fram með brtt. í þá átt, ef jeg hefði ekki hugsað, að brtt. ætti aðeins við 1. lið 4. gr., en nú er það því miður of seint.