12.05.1927
Neðri deild: 73. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (764)

50. mál, vörn gegn berklaveiki

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vil taka undir það, að jeg tel brtt. hv. þm. V.-Sk. (JK) til bóta, af þeim ástæðum, sem hann tilfærði, og jeg vona, að háttv. 1. þm. Rang. leggi ekki svo mikla áherslu á að fá öll lögin prentuð upp, að hann leggist á móti brtt. þessari. Annars geri jeg ráð fyrir, að þessi breyting á berkavarnalögunum verði sjerprentuð og send sýslumönnum og sveitarstjórnum, því að það er 14. grein laganna, sem snertir almenning mest.