07.05.1927
Efri deild: 68. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í B-deild Alþingistíðinda. (791)
113. mál, tollar og gjöld með 25% gengisviðauka
Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):
Það er ákaflega þægilegt fyrir háttv. meiri hl. að leggja til, að frv. þetta verði samþykt, af því að tekjuhlið fjárlaganna hafi verið bygð á því. Mjer finst, að hv. frsm. meiri hl. (JJós) hefði átt að skýra afstöðu sína til málsins heldur en að vera að skella skuldinni á stjórnina, þó óbeint væri.
Á þinginu 1924, þegar lög þessi voru sett, var gengið út frá því sem sjálfsögðu, að þetta fyrirkomulag yrði aðeins til bráðabirgða. Jeg lít nú svo á, að það sje stjórnarinnar skylda, eða að minsta kosti að nokkru leyti, að búa út tekjufrv. fyrir ríkið, og það er vanrækslu stjórnarinnar að kenna, að ekki er mögulegt fyrir hv. meiri hl. fjhn. að fella þennan skatt niður, því að hún hefir ekki komið með neitt frv. til að vinna upp aftur þær tekjur, sem hún misti, en sem hún gerir ráð fyrir í sínu frv. af þessum skatti. Það líta margir svo á, að hæstv. stjórn hafi hreint og beint gleymt þessu frv.; hún hafi hugsað sjer, að lögin giltu lengur en þau gerðu, og þess vegna hafi hæstv. stjórn gert ráð fyrir að fá þessar tekjur árið 1928, enda þótt engin lagaheimild væri til þess. Svo þegar komið er fram á mitt þing, kemur hæstv. stjórn fram með þetta frv., — eða þá að hún hefir hugsað sjer að haga því þannig til, að láta ekki þetta frv. um gengisviðauka koma fyr en svo seint á þinginu, að það væri ekkert annað viðlit en að samþykkja hann, og það er það, sem hv. meiri hl. fjhn. ber nú fyrir sig. Hann segir, að við getum ekki annað gert, eftir því sem nú er í pottinn búið, en að samþykkja hann.
Jeg álít, að ekki þurfi langar umr. um þetta mál. Það er búið að margrífast um það þing eftir þing, og þingið er margbúið að brigða loforð sín um að ljetta af þessum skatti, og hæstv. stjórn er langsekust um þetta, af því að hún hefði átt að gera þær ráðstafanir, sem til þess þurfti. Jeg álít því, að það þurfi ekki að ræða þetta ákaflega mikið; atkvæðagreiðslan sker úr því og sýnir, hverjir vilja standa við gefin loforð og ljetta af þessum skatti.