09.05.1927
Efri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (797)

113. mál, tollar og gjöld með 25% gengisviðauka

Jónas Jónsson:

Það gleður mig að heyra, að hæstv. forsrh. (JÞ) hefir ekki gleymt frv. Í fyrstu, eins og ýmislegt benti til áður. Þessi skýring hans kemur að vísu eftir á, en hún er betri en ekki neitt.

Það hefir síður en svo aukið álit mitt á fjármálaráðsmensku hæstv. forsrh. (JÞ), sem gerði það glapræði í fyrra að taka einn flokk gjaldenda út úr og ljetta á honum sköttum, að hann ætlar sjer að halda í þennan tekjustofn, sem bundinn er við ákveðið gengi krónunnar, svo lengi og hvað lengi sem hann verður ráðherra. Og þetta er sami ráðherrann, sem átti þátt að því á þessu þingi að fella frv. um að ljetta undir með landbúnaðinum með því að lækka útflutningsgjöld á landbúnaðarafurðum! Einmitt þetta, að hæstv. stjórn ætlar að nota þennan gjaldstofn eftir að grundvellinum er kipt undan honum, er nóg til þess, að jeg mun greiða atkv. á móti frv., enda vil jeg ekki á neinn hátt vera bendlaður við eða bera ábyrgð á því skattafyrirkomulagi, sem hæstv. stjórn hefir komið á. Jeg býst ekki við því, að mitt atkvæði hafi áhrif á gang málsins, en þeir, sem sjá, að hverju stefnt er, gerðu rjettast í því að taka ekki á sig sameiginlega ábyrgð með stjórninni í skattamálunum.