26.04.1927
Efri deild: 58. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í B-deild Alþingistíðinda. (847)
38. mál, landskiftalög
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Eins og hv. deild er kunnugt, er mál þetta komið frá Nd. Landbn. þessarar deildar hefir haft það til meðferðar, og eins og nál. ber með sjer, leggur hún til, að frv. nái fram að ganga. Aðalbreytingin, sem frv. gerir, er sú, að það kveður á um, að verðhækkun lands og jarða af aukinni ræktun og öðru því líku hafi ekki áhrif á skifti annara hluta jarðarinnar. Það á að leggja til grundvallar ekki einungis mat jarðanna, heldur hina upphaflegu hlutfallsskiftingu. Nefndin álítur þessa breytingu til bóta og leggur til, að frv. verði samþ.