19.04.1927
Neðri deild: 55. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (860)
111. mál, sala á Hesti í Ögurþingum
Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson):
Út af ummælum hv. 2. þm. Reykv. (MJ) vil jeg geta þess, að jeg hygg, að það sje misskilningur hjá honum, að betur verði sjeð fyrir jarðnæði handa prestinum, ef 2. gr. frv. er samþykt. Þessar 2000 kr., sem gert er ráð fyrir, að fáist fyrir jörðina, hrökkva skamt til þess að kaupa gott jarðnæði, og er betra að sjá fyrir því á annan hátt.
Jeg vona því, að hv. deild fallist á brtt.