07.05.1927
Neðri deild: 69. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (901)
67. mál, einkasala á áfengi
Frsm. (Árni Jónsson):
Háttv. Ed. hefir felt niður brtt., sem samþ. var hjer í deildinni, um það, að sjúkrahús mættu einnig panta áfengi eins og nú. Nefndin hefir ekki borið sig saman um þetta, enda var hún áður skift í málinu, en minni hl. vill ekki hrekja málið milli deilda fyrir þetta og leggur því til, að frv. verði samþ. óbreytt.