18.05.1927
Efri deild: 77. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (917)
93. mál, greiðsla verkkaups
Jón Baldvinsson:
Jeg verð að segja það, að mjer þykir hv. allshn. ætla sjer að breyta frv. til hins lakara, því að í brtt. sinni hefir hún sett inn eina setningu, er verða má til þess, að lítið gagn verði að frv., og er það niðurlagssetningin þessi: „nema öðruvísi sje um samið“, — því að hún þýðir í flestum tilfellum það, að kaup skuli greiðast löngu eftir á.
Frv. kom fram af því, að við síldarvinnu, pökkun o. s. frv. hafa menn ekki fengið kaup sitt goldið refjalaust, og á verkafólk nú þúsundir króna útistandandi hjá síldarútvegsmönnum. Þessi tregða á kaupgreiðslu hefir. komið sjer stórbagalega, einkum vegna þess, að flestir, sem þar hafa átt í hlut, hafa átt fyrir öðrum að sjá, flestir haft heimili, sem verkalaun þeirra hafa þurft til að ganga jafnharðan.
Af því jeg álít, að hv. allshn. hafi spilt frv. með brtt. sinni, en nú er orðið svo áliðið þingtímans, að ekki er unt að koma fram með prentaðar brtt., vona jeg, að hæstv. forseti leyfi mjer að bera fram skriflega brtt. við brtt. háttv. allshn., um að bæta þar aftan við setningu, svo að 1. gr. verði líkari því, sem hún var í frv. eins og það kom frá hv. Nd.