09.03.1927
Neðri deild: 25. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (959)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Tryggvi Þórhallsson:

Þetta mál kemur nú fyrst til umr. afbrigðalaust, og er þá komið til 3. umr., og eru þó, eftir því sem hjer er bókað í málaskránni, ekki nema sex sólarhringar síðan það var lagt fram, og mál, sem hjer hafa verið lögð fram á undan, hafa ekki komið einu sinni til 1. umræðu. Málið var tekið með afbrigðum til 1. umr., við 2. umr. voru veitt afbrigði og útbýtt till., sem gerbreytti frv., svo að ekki stóð eftir af því nema örfá orð síðast í gr., og í gær átti málið að koma til umræðu, en þá var ekki búið að prenta frv., en hitt er skylt að þakka, að tekin var til greina brtt. og leyft, að hún kæmi til umr. og atkv.

Jeg verð að segja enn á ný, að jeg kann illa við það um svona stórt mál, að það sje sótt í slíku offorsi eins og hjer hefir átt sjer stað.

Vil jeg leyfa mjer, í framhaldi af því, sem hjer fór fram við 2. umr., að víkja að því, hverja afstöðu jeg tek til frv. eins og það liggur fyrir nú á þskj. 130, eftir þeim upplýsingum og svörum, sem hæstv. forsrh. (Jp) hefir gefið.

Jeg beindi fyrst þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðherra, hvort hjer væri um fast eða laust lán að ræða. Því var svarað svo, að hjer væri um laust lán að ræða, þótt hæstv. ráðh. vildi ekki fortaka, og teldi jafnvel líklegt, að það yrði framlengt. Þrátt fyrir það, þótt hæstv. ráðh. segði þetta, lýsti hann yfir því, að það væri ekki nægilegt, að þessi heimild væri bundin við það tímabil, og liggur í þeim orðum það, að ekki sje víst, að lánið yrði borgað innan 12 mánaða. Í annan stað gerði hæstv. ráðh. ekkert til þess að sýna fram á, eða yfirleitt til að gera það sennilegt, að það væri hægt að borga lánið upp á þessum tíma, og hafði ekki mikið við það að athuga, sem jeg sagði um samanburð á afstöðu atvinnuveganna og bankanna við það sem var í fyrra, og hneigði yfirleitt ekki að því áliti, sem jeg hafði á ástandinu. Með öðrum orðum, hæstv. ráðh. kom ekki með nein rök eða reyndi að mótmæla því, sem jeg sagði, að það væri mjög óvíst og ólíklegt, að lánið yrði borgað upp innan 12 mánaða. Sjerstaklega er það eitt, sem gerir það mjög ólíklegt, þar sem hæstv. ráðh. hefir getið þess, að nokkuð af fjenu — hve mikið, veit jeg ekki — ætti að nota til þess að borga með gamla, áfallna skuld. En ekki hefir verið sagt neitt um það, fyrir hvern ætti að borga þessa gömlu skuld, og mjer er ekki kunnugt um, að það sje Landsbankinn, sem þurfi að nota þetta lán til þess að borga með gamlar, áfallnar skuldir. Út frá þessu öllu verð jeg ekki eingöngu að telja það líklegt, heldur víst, að ef til slíkrar lántöku er stofnað á þessum grundvelli, þá verður þetta lán í raun og veru ekki laust lán, til að veita í bili atvinnuvegum landsins, heldur að einhverju meira eða minna leyti fast lán, sem kemur inn í okkar atvinnulíf sem nýtt fjármagn, og þá opnast það svið, sem jeg kom að í minni ræðu. Út frá þessu dró jeg gengismálið inn í umr.

Jeg spurði hæstv. ráðh., hvort hann vildi lýsa yfir, að þetta lán yrði ekki notað til þess að hækka krónuna, og yfirleitt að ekki yrði að hækkuninni stefnt, og færði rök fyrir þeim fyrirspurnum.

Á því sviði hefir hæstv. ráðh. ekki heldur viljað stíga hálft skref til samkomulags. Þvert á móti. Hæstv. ráðh. sagði, að nú bæri fyrst að halda genginu föstu, og því næst, þegar atvinnuvegirnir gætu risið undir því, þá að hækka. Sá, sem svo á að leggja mat á það. hve mikið atvinnuvegirnir þoli, það er vitanlega hæstv. ráðh. sjálfur, og við vitum það, og allur landslýður veit það, hvaða mat hæstv. ráðh. lagði á það árið 1925, þegar hann bar ábyrgð á því að hækka krónuna svo mjög. Jeg álít það óverjandi að eiga þetta aftur undir mati hæstv. ráðh. — Svar hæstv. ráðh. er beinlínis þveröfugt við það, sem jeg hefði óskað. Þetta nýja lán vill hann nota sem tröppu, til þess að geta komið í framkvæmd nýrri, ranglátri og skaðvænlegri hækkun peninganna. það vottar ekki fyrir, að hæstv. ráðh. hafi lært neitt af þeim alvarlegu tíðindum, sem orðin eru í þessu máli. Og ekki verður heldur sjeð, að hann verði var við, hvílíkt ranglæti hann hefir framið og vill halda áfram að fremja.

Þannig voru þá undirtektir hæstv. ráðh. á þessum tveimur sviðum málsins, sem jeg hefi vikið að, og ekki fjellu mjer þær betur í geð á hinum öðrum sviðum, sem jeg vjek að. Hæstv. ráðh. vill alveg leiða hjá sjer að tala um, til hvers á að verja þessu mikla láni; það er eins og hann telji, að þinginu megi vera óviðkomandi, hvort lánstraust landsins er nú bundið í svo stórum stíl til þess að halda uppi hinum óhollustu fyrirtækjum í þjóðfjelaginu. Hið eina, sem hæstv. ráðh. upplýsir í málinu, er, að nokkuð af láninu eigi að nota til þess að borga gamla skuld. Það er með öðrum orðum endurtekning gömlu sögunnar, þegar samverkamaður núverandi forsrh. tók enska lánið og notaði að mestu til að borga gamlar skuldir. Jeg álít þá lántöku einhver sorglegustu mistök í fjármálasögu síðari ára og vil ekki stuðla að því með mínu atkvæði, að slíkt komi fyrir aftur. Jeg vantreysti ekki stjórn Landsbankans; hún hefir ekki þá synd að bera, hvernig enska láninu var ráðstafað. En jeg verð að vantreysta hæstv. landsstjórn í þessu sambandi, vegna þess, hvernig hæstv. forsrh. (JÞ) vjek að þessu atriði við 2. umr. þessa máls, og í öðru lagi af því, að hann er formaður í bankaráði Íslandsbanka og verður því að bera mjög mikla ábyrgð á rekstri þess banka, og jeg álít, að sá banki hafi notað enska lánið á þann hátt, sem ekki var forsvaranlegt. Jeg vil ekkert eiga á hættu um það, hvernig hæstv. ráðh. sem forsætisráðherra, sem formaður bankaráðs Íslandsbanka, sem fulltrúi fyrir spekúlantana í landinu kann að beita sjer gagnvart stjórn Landsbankans.

Loks var það síðasta atriðið, sem jeg beindi til hæstv. ráðh., sem jeg verð að víkja svolítið að. Eins og málið liggur fyrir á þskj. 130, ef þetta fjármagn verður fest í hinum ísl. atvinnuvegum, og þá fyrst og fremst í atvinnurekstri í kauptúnum og kaupstöðum, þá álít jeg það enn nýtt spor í áttina til að auka þá óheppilegu þróun, að efla kauptúnin á kostnað sveitanna. Að svo miklu leyti, sem hæstv. ráðh. gæti beitt áhrifum sínum í þessu efni, ber jeg fylsta vantraust til hans. Fái hann að miklu leyti vald til að beina þessu fjármagni inn á ákveðnar brautir, er jeg viss um, að afleiðingarnar verða alvarlegar, ekki einungis fyrir okkur, sem nú lifum, heldur og fyrir komandi kynslóðir. Og hversu langt er þess að bíða, að alt lánstraust landsins sje bundið í hinum stopulasta atvinnurekstri og að ekki verði hægt að fá fjármagn til viðreisnar landbúnaðinum. — Ofvöxtur bæjanna og þetta öfugstreymi í þjóðlífinu — sem hæstvirt landsstjórn og flokkur sá, sem að henni stendur, ber ábyrgð á — veldur því, að þessarar óheillalántöku er þörf.

Með skírskotun til þess, að þeim fyrirspurnum og bendingum, sem jeg hefi borið fram, hefir verið svarað þannig, að tilgangi þeim, sem í þessu frv. liggur, verður ekki beint inn á heppilega braut, þá verð jeg að lýsa yfir því, að jeg mun greiða atkvæði á móti þessu frv. eins og það liggur hjer fyrir á þskj. 130, ef það þá kemur til atkvæða eins og það liggur þar fyrir. Hinsvegar hefi jeg notað þann frest, sem gefist hefir, til þess að bera fram brtt. á þskj. 139, sem skýrir sig sjálfa hvað innihaldið snertir; tilgangur hennar er sem sje sá, að þá beinist ábyrgðin að mestu leyti yfir á hendur Landsbankastjórnar. Frá mínu sjónarmiði tel jeg, að sú tilhögun væri miklu nær lagi, því að þá mætti miklu fremur skoða þetta lán sem laust lán, ef Landsbankinn notaði það eingöngu í sínar þarfir, af því að jeg veit ekki til, að hann þurfi að fá útlent lánsfje til þess að festa það við að borga gamlar skuldir. Sömuleiðis er það, að Landsbankinn á ekki þá sögu að baki sjer, að mínum dómi, að hann hafi misnotað það, þegar enska lánið var tekið, til þess að festa það í atvinnurekstri, sem hafi mistekist mjög. Loks hefi jeg þá persónulegu þekkingu, við það að vera endurskoðari í Landsbankanum, að jeg get gjarnan borið fram þá traustsyfirlýsingu til stjórnar Landsbankans, sem felst í þessari till., að hún muni ekki misnota þetta lán á þann hátt, sem jeg hefi óttast, ef landsstjórnin fengi að hafa þetta mál í sínum höndum. Um Íslandsbanka skal jeg færra segja, enda þekki jeg þar lítt til. Jeg álít, að á sínum tíma hafi stjórn hans misnotað enska lánið. Jeg lít og svo á, sem skyldur ríkisins sjeu ekki hinar sömu gagnvart Íslandsbanka sem gagnvart Landsbankanum.