12.03.1927
Efri deild: 26. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (973)
58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands
Forseti (HSteins):
Það er rjett hjá hæstv. forsrh. (JÞ), að skrifstofunni hefir skotist yfir að láta útbýta frv. það snemma, að ekki þyrfti að leita afbrigða um að taka það fyrir í dag. Hinsvegar vænti jeg, að það komi ekki að sök eða verði til þess að tefja málið, og leyfi mjer þá að bera það upp, hvort afbrigði skuli leyfð eða ekki.