17.03.1927
Efri deild: 30. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (987)
58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands
Frsm. meiri hl. (Björn Kristjánsson):
Máli þessu var vísað til fjhn. fyrir fáum dögum, og hefir meiri hl. nefndarinnar falið mjer að segja örfá orð um málið.
Jeg get því miður harla lítið sagt um þetta mál, því að mjög mikil hula virðist hvíla yfir því, hvort sönn þörf er fyrir að taka svo hátt lán. Og enn meiri hula er dregin yfir hag bankanna, sem síst ætti við, er svo stendur á, þegar ríkissjóður á hvað eftir annað að ganga í ábyrgð fyrir þá.
Það, sem fyrst gerist í málinu, er það, að stjórnin ber fram frv. um, að ríkissjóðurinn gangi enn í nýja ábyrgð fyrir bankana fyrir stórláni, og ber þær ástæður fram, „að æskilegt þyki“, að Landsbankinn komist í viðskiftasamband í Ameríku. Fleira er ekki sagt um þetta þar, svo að nefndin gat ekki grætt mikið á þessu, og þess vegna leitaði hún til stjórnar Landsbankans, lántakandans sjálfs, og spurðist fyrir um það, hvort þeir bankastjórarnir álitu, að bráðnauðsynlegt væri, atvinnuveganna vegna, að taka slíkt stórlán. Þeir vildu ekkert ákveðið um það segja, en tóku þó fram, að Landsbankinn hefði nægilegt rekstrarfje í bráðina.
Þar næst kom svo röðin að bankastjórum Íslandsbanka, sem nefndin sneri sjer til; þeir könnuðust við, að þeir þyrftu einhverrar hjálpar við, að minsta kosti sem svaraði 1/9 hluta af því láni, sem ætti að taka. Var þá eftir að vita, hver þyrfti á 8/9 hlutum lánsins að halda. Nefndin sneri sjer þá til ríkisstjórnarinnar, og virtist það vera álit hennar, að atvinnuvegirnir myndu verulega líða við það, ef lánið væri ekki tekið. Eins upplýsti stjórnin, að ekki væri víst, að alt lánið yrði notað, þó að heimild væri til þess, þar sem þetta lán væri reikningslán, og því heimilt að draga af því sem sýndist, og stjórnin áleit, þó að ekki væri bein þörf á láninu í svip, að þá væri þetta nokkurskonar öryggisráðstöfun, ef illa kynni að fara um viðskifti landsins við önnur lönd. Þegar meiri hl. nefndarinnar hafði fengið þessar upplýsingar, þá vildi hann ekki taka á sig þá ábyrgð að vera á móti lántökunni, og vildi ekki á neinn hátt styðja að því, að atvinnuvegirnir biðu tjón af því, og það er þess vegna, sem meiri hl. nefndárinnar hefir fallist á að greiða atkv. með frv.