17.03.1927
Efri deild: 30. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (990)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg vil leyfa mjer að þakka hv. meiri hl. nefndarinnar fyrir undirtektir undir þetta mál. Og jeg get ákaflega vel tekið undir þá hugsun, sem kom fram hjá hv. frsm., að það er yfir höfuð ákaflega áríðandi nú — eins og raunar endranær — að bankarnir fari sjerstaklega gætilega með það lánsfje, sem þeir hafa og fá á milli handa. Jeg get fullkomlega tekið undir það, að það lítur svo út, sem í ýmsum tilfellum hafi verið farið of langt í því að halda uppi atvinnurekstri, sem rekinn var með tapi. Auðvitað hafa þeir bankastjórar, sem þetta gerðu og ábyrgð á því bera, eflaust í hverju tilfelli gert það í góðri meiningu. Það getur oft verið mikið vandamál að skera úr, hvenær á að stöðva slíkan atvinnurekstur, eins og raunar átakanlega hefir komið í ljós í þeim ræðum, sem hv. 1. landsk. (JJ) hefir haldið hjer, þar sem hann hefir lagt sjerstaka áherslu á að halda ekki uppi atvinnurekstri, sem rekinn er með tapi, — og í ummælum hv. 5. landsk. (JBald) um það, hver óhæfa hafi verið framin af útibúi Íslandsbanka á Ísafirði, þegar nú var stöðvaður þar rekstur allmikillar mótorbátaútgerðar, sem hefir verið rekin með tapi árum saman. Þetta skapaði náttúrlega nokkuð atvinnuleysi; og það bakar hlutaðeigandi bankastjórn eða útibússtjóra meðal annars ákúrur — að jeg hygg alveg óverðskuldaðar og órjettmætar — fyrir það, að þetta sjeu einhverjar „pólitískar“ brellur hjá andstæðingunum, til þess að skapa neyðarástand.

Um eftirlit ríkisstjórnarinnar með bankanum er það svo, að hún á býsna erfitt með að hafa nokkurt verulegt eftirlit með ákvörðunum um einstakar lánveitingar. En hún getur lýst skýrt yfir við bankastjórnina — og því vil jeg ekki á neinn hátt skorast undan — því áliti sínu, að það verði að gæta ýtrustu varúðar um lánveitingar og ýtrustu varúðar í að halda uppi til langframa fyrirtækjum, sem rekin eru með tapi. Hitt held jeg allir viðurkenni, að þótt það komi fyrir í sjerstökum kreppuárum, að atvinnufyrirtæki, sem sýnt er, að eru heilbrigð, beri eitthvert tap frá borði, þá sje oft og einatt ekki rjettlátt að velta þeim og stöðva atvinnu vegna slíks.

Hv. 1. landsk. hjelt hjer langa ræðu, og hv. 5. landsk. endurtók sumt úr henni. Að því leyti, sem þessi langa ræða hv. 1. landsk. snerti málið, var hún bygð á einum grundvallandi misskilningi, sem sje að hjer væri um það að ræða, að Landsbankinn tæki í raun og veru stórt lán. Það er ekki það, sem hjer er um að ræða, heldur á honum að verða opin heimild til þess að fá lán eftir hans nauðsynlegu þörfum. Því hefir verið rjett lýst, að þarfirnar fyrir slíkt erlent lán eru nú sem stendur ekki mjög miklar eða aðkallandi. Og það getur vel farið svo — og myndu sjálfsagt allir vilja óska þess —, að sú lánsheimild, sem þessi ameríski banki vill nú opna Landsbankanum, verði ekki notuð nema að einhverju mjög litlu leyti. Það er vitanlega ekki að sökkva sjer í skuldir, þó að einn banki semji svo við annan, að hann geti fengið hjá honum alt að nokkuð mikilli upphæð, ef til þess þarf að taka. Þetta er ekki að taka lán. Það er ekki stofnað til skuldar fyr en ef heimildin til notkunar lánsfjárins er framkvæmd.

Nú mætti náttúrlega segja, að ef lægi fyrir stór og brýn þörf fyrir lánsfje, þá mætti telja líklegt, að notað yrði eftir því mikið af slíkri heimild. En báðir þessir hv. þm., sem jeg nefndi, hafa lýst því rjettilega, að þannig er ekki ástatt nú sem stendur. En þá finst mjer því síður varhugavert fyrir löggjafarvaldið að gera það, sem þarf til þess, að Landsbankinn fái þá tryggingu gegn fjárskorti, sem hjer er um að ræða. Og jeg verð að segja, að það er ekki rjett að vilja neita Landsbankanum um þessa ábyrgð, þó að bankinn eigi nokkra fúlgu af sínu öðru lánstrausti óeydda erlendis. Jeg hefi leyft mjer að benda á það í umræðum málsins í hv. Nd., að móts við þá upphæð, sem bankinn hefir þurft að hafa til umráða og nota af erlendu lánsfje 1926, er sú fúlga ekki stór, sem Landsbankinn á nú ónotaða af sínu erlenda lánstrausti. Það er ekki gert ráð fyrir, að Íslandsbanki muni nota öllu meira erlent lánsfje heldur en hann nú hefir. Og Landsbankinn á ekki ónotað erlendis svo mikið af sínu lánstrausti, sem þó getur komið fyrir að hann þurfi að nota á einu ári, ef kreppan heldur áfram. Það er höfuðástæðan fyrir því að vilja nú útvega tryggingu fyrir, að hann geti haft aðgang að meiru fje, svo framarlega sem nauðsyn krefur.

Það er ekki rjett hugsun hjá hv. 5. landsk., að vilja skjóta slíku máli á frest vegna þess að það er ekki í augnablikinu komin þörf fyrir að nota slíkt reikningslán, sem hjer er farið fram á að tryggja bankanum. Þessi hugsun gæti staðist, svo framarlega sem þingið sæti hjer alt árið eða væri sjerstaklega auðvelt að ná því saman. En svo er einmitt ekki. Alþingi verður að gæta þess að gera meðan það situr þær ráðstafanir, sem duga mega þangað til það á að koma saman aftur.

Það er því algerður misskilningur hjá hv. 1. landsk., að hjer sje verið að taka stærsta lán, sem landið hefir tekið síðan enska lánið var tekið 1921. Það var raunverulegt lán, — öll sú upphæð var tekin að láni, sem þar var fjallað um; og lánssamningur var gerður, svo sem kunnugt er, um afborganir á 30 árum.

Sama er að segja um lán það, sem Landsbankinn tók í London í ársbyrjun 1924. Það var tekið með ábyrgð ríkisstjórnarinnar án þess að álitið væri, að til ábyrgðarinnar þyrfti sjerstaka lögheimild eða samþykki þingsins. Þetta eru hin raunverulegu lán, sem tekin hafa verið; en hitt, nefnilega reikningslánið í London, er ekki lán í sama skilningi, heldur samningur um heimild til þess að notfæra sjer vissa fjárfúlgu eftir því sem þörf krefur. T. d. má geta þess, að í 2 ár samfleytt, 1924–’25, notaði Landsbankinn sjer ekkert af sínum reikningslánum í London; skuldaði þar ekki neitt.

Nei, það nær ekki nokkurri átt, eins og hv. 1. landsk. (JJ) gerir, að telja skuldir landsins út á við með því að leggja saman raunveruleg lán og reikningslánsheimildir, sem Landsbankinn hefir í erlendum bönkum. Þetta verður að fá út á hverjum tíma með því að taka föst lán og raunverulegar skuldir eða draga frá innieignir hjerlendra banka í reikningslánum hjá erlendum viðskiftaaðiljum.

Að ekki er tekin fram lánsupphæð og lánskjör í lagafrv., er ekki annað en það, sem tíðkast meðal annara þjóða. Þjóðbankinn í Danmörku trygði sjer reikningslán í Englandi og Ameríku og ríkið ábyrgðist. En hvergi var því slegið fram opinberlega, hversu miklu það næmi. Þetta stafar af því, að ef birt væri, mundi það gefa almenningi, sem ekki hefir skilyrði til að átta sig á eðli lánsins, skakka hugmynd um það. Mundi margan henda, eins og hv. 1. landsk. og hv 5. landsk., að rugla saman hámarki lánsheimildar og raunverulegri lántöku.

Í þessu efni hefir ekkert verið dulið fyrir þinginu. Allar upplýsingar hafa staðið því til reiðu. Og stjórn Landsbankans hefir samið um tiltekið reikningslán, og liggur skýrt fyrir hámark lánsupphæðarinnar. En hversu mikill hluti hennar verður notaður, verður ekki sagt um að svo stöddu.

Báðir hv. þm., sem jeg á orðastað við, hafa gert gengið að umtalsefni í sambandi við þessa lántöku. Hv. 1. landsk. sló bæði úr og í. Hann gerði ráð fyrir, að nota ætti lánið til að hækka gengið, en hinsvegar, að það yrði fjötur á fót hækkunarmanna og mundi gera þeim örðugra fyrir að hækka krónuna. Hv. 5. landsk. var með efasemdir um, hvernig það mundi verka, en reyndi þó að setja það í samband við gengismálið. En þar er ekki um hið minsta samband að ræða. Jeg hefi áður lýst því yfir fyrir hönd stjórnarinnar, að hún álítur öldungis ótækt að gera tilraun til að hækka gengið með erlendum lántökum. Ef krónan hækkar vegna framboðs á erlendum gjaldeyri, er hann öðruvísi til kominn og ekki að láni tekinn, heldur gengur þvert á móti til að borga erlendar skuldir eða safnast fyrir sem innieign erlendis.

Jeg finn ekki ástæðu til að rekja lið fyrir lið þá raunalegu fjármálasögu, sem hv. 1. landsk. hefir flutt bæði í ræðu og nál. sínu. Jeg þarf ekki að taka það fram, að hún er ákaflega ófullkomin og villandi, og mundi ekki verða til annars en málalenginga, sem þessu máli væru algerlega óviðkomandi, ef jeg tæki mig til og færi að hnekkja einstökum atriðum. En það er einstaklega auðvelt.

En út af ummælum hans ætla jeg að nota tækifærið til að minnast á eitt, sem umbóta er vant. Það eru hagskýrslur þjóðarinnar. Þær þurfa að komast í það horf, að þing og stjórn og aðrir, sem hug hafa á, geti fylgst með í þjóðarbúskapnum í heild sinni, hvernig hann er rekinn og hvernig hann er stæður. En til þess vantar, að gefnar sjeu skýrslur um skuldaskifti landsmanna við útlönd. Af því að þær liggja ekki fyrir, er mögulegt að gefa svo villandi yfirlit og rangt, sem hv. 1. landsk. hefir nú gert. Jeg hefi fært þetta í tal við hagstofustjóra, og hann hefir lofað að gera sitt til að fá þessu kipt í lag, þannig, að hæfilegum tíma eftir áramót mætti fá glögt yfirlit um hreyfanleg skuldaskifti landsmanna við útlönd.

Talsverðar ýkjur voru það hjá hv. þm. (JJ), að alt útlenda fjeð, sem bankarnir hafa fengið að láni, hafi farið í tekjuhalla á rekstri atvinnuveganna.

Jeg hefi áður sýnt, að þótt mikið hafi tapast á rekstri þeirra, má þó benda á aukin verðmæti í landinu, sem fram til 1923 að minsta kosti samsvara skuldaaukningunni við útlönd. Og þótt haldið sje áfram til ársins, sem er að líða, verður útkoman ekki lakari. Þetta segi jeg til þess að leiðrjetta það, sem hv. þm. ofsagði, en ekki til þess að mæla bót því að halda uppi of lengi tekjuhallaatvinnurekstri. En jeg hygg, að stjórnir bankanna leggi nú inn á heilbrigðari brautir og því minni ástæða til að vera hræddur við að trúa bönkunum fyrir auknu lánsfje.

Gott, ef satt væri hjá háttv. 1. landsk., að ekki hefði annað ábjátað hjá okkur en gengishækkunin. Við stæðum vel að vígi þá, ef ekkert verðfall hefði orðið síðan 1925 móti gulli á útfluttum vörum. Auðvelt er að sýna fram á, að ljeleg afkoma ársins 1926 stafar að mestu leyti af þessu verðfalli. Hv. þm. ætti að vera það kunnugt, að erfiðar horfur landbúnaðarins stafa af verðfalli á kjöti, sem ekkert á skylt við neina gengishækkun, því að það átti sjer stað frá því í okt. síðastl. til þessa, án þess að um gengisbreytingar á ísl. krónu væri að ræða.

Jeg get ofurvel skilið, að háttv. 1. landsk. sem stjórnarandstæðingur vilji ekki trúa stjórninni fyrir lánsfje. Það er að minsta kosti eðlilegt, að hann segi það, hvað sem hann annars kann að álíta um það. En það er ekki rjett, að stjórnin komi hjer til þingsins og biðji um nýtt lán. Hvað sem seinna kann að verða, þá er það ekki gert með þessu frv. Það var því óþarfi fyrir hann að vera að minnast á vantraust sitt á stjórninni í þessu efni í sambandi við þetta frv.

Hv. 5. landsk. fann það að frv., að nafn bankans, sem tekur upp viðskifti við Landsbankann, er nefnt þar. Færði hann þau rök til, að ef hentara þætti að flytja viðskiftin yfir í annan banka, þyrfti nýja heimild. Ef færsla færi fram um áramót, sæti eigi þing á rökstólum og gæti valdið óþægindum. En þetta ber ekki svo að. Lánsheimildin er opnuð Landsbankanum til afnota um 12 mánuði. Ef til breytinga kæmi, yrðu þær um þingtímann næsta ár. Hitt er rjett; ef óskað er að flytja lánsheimildina í annan banka, þarf til nýja heimild. Það er í samræmi við það, sem gert er með þessu frv., að þar sem landsstjórn var áður heimilt með fullri vitund þings að ábyrgjast rekstrarlán fyrir Landsbankann, þurfi nú lagaheimild til. Það getur að vísu valdið óþægindum, en jeg viðurkenni, að það hefir líka sína kosti. Það getur orðið óheppilegt, að bankastjórn veit sjer óhætt að gera hverjar þær ráðstafanir, er henni sýnist, og getur hvenær sem er farið til landsstjórnar og krafist nýrrar ábyrgðar af henni, er hún þarf við.

Jeg hefi ekkert við breytinguna að athuga, enda sjálfur flutt hana að efni til sem brtt. við upphaflega frv., til að staðfesta í lagaformi þá heimild, sem stjórnin hefir haft. Getur verið, að betri gætur verði hafðar á útlánum, ef gert er erfiðara fyrir að ná í ábyrgð ríkisstjórnar fyrir nýjum lánum. í þá átt fer þetta frv.

Það er svo fjarri því, að hjer sje verið að skrifa upp á víxil „in blanco“, þar sem upphæðin er ókunn, heldur er um að ræða ábyrgð fyrir tiltekinni lánsupphæð, sem þegar er gengið frá.

Þá ræddi hv. þm. (JBald) um afskifti stjórnarinnar af viðskiftum bankanna sín á milli. Þau eru miklu minni en hann gerir ráð fyrir. Jeg get sagt það, að í minni stjórnartíð hefi jeg sem minst viljað blanda mjer inn í viðskifti þeirra. Landsstjórnin hefir þó að ýmsu leyti þá aðstöðu til bankamála, að hún getur ekki komist hjá allri íhlutun um þetta, þar sem forsrh. er í bankaráði Íslandsbanka og fjrh. er samkvæmt lögum eini maðurinn utan framkvæmdarstjórnar Landsbankans, sem á að ráða um bankans málefni. Það er ekki hægt að vísa til neins annars en fjármálaráðherra, ef eitthvað kemur fyrir, sem bankastjórnin vill ekki taka ákvörðun um. Jeg vona, þegar búið er að skipa Landsbankanum yfirstjórn, sem Alþingi ræður að sínu leyti, þurfi stjórnin ekki að blanda sjer í viðskifti bankanna.

Jeg þakka hv. 1. landsk., að hann ætlar ekki að setja sig á móti frv., sitja hjá eða greiða atkv. með því til 3. umr. Með því sýnir hann, að hann stendur nærri flokksbræðrum sínum í Nd., sem hafa sýnt skilning á þessu máli og gert skýrt og skilmerkilega grein fyrir ástæðum sínum til þess að vera því fylgjandi.