19.01.1928
Sameinað þing: 1. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (10)

Rannsókn kjörbréfa

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg vil eindregið mælast til þess, að þeir hv. þm., sem ógilda vilja kosningu mína, sýni hreinlyndi í því máli, en sjeu ekki með neinn yfirdrepskap um að fresta málinu, til að varna mjer að komast í nefndir á þessu þingi. Jeg tel það vera hefndarverk gegn kjósendum mínum, ef svo er að farið, en þeir eru saklausir í þessu máli, þótt einhverjir sjeu, sem nú vilja ýta við mjer. Jeg tek þetta fram sakir þess, að jeg veit, að kjósendum mínum þykir það miður, ef mjer verður gert erfitt fyrir um þingstörf. En mjer dettur ekki í hug, að meiri hluti þings neiti að samþykkja kosningu mína, þegar á herðir. Til þess eru of margir rjettlátir meðal stjórnarliða.