21.03.1928
Neðri deild: 53. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2005 í B-deild Alþingistíðinda. (1020)
3. mál, landsreikningar 1926
Magnús Guðmundsson:
Það eru einungis fá orð út af ræðu hv. þm. Ísaf. Hann áleit það vítavert, að konungsmatan, sendiherralaunin o. fl. væri greitt í dönskum krónum. En þetta hefir verið samþ. á mörgum þingum og það hefir verið samþ. á þinginu nú, því ekki hefir komið fram brtt. þess efnis við fjárlögin. Þessu var að vísu hreyft við 2. umr. fjárlaganna, en engin brtt. kom fram. En ef þessu er ekki breytt, þá er bæði fyrv. og núv. stjórn heimilt að fara eftir þeirri venju, sem myndast hefir á undanförnum árum. En hitt get jeg viðurkent, að rjettara væri að taka upp í fjárlög hærri upphæðir í ísl. krónum. Hvað stúdentunum viðvíkur, þá er það alt of lítið að ætla þeim að lifa af 100 kr. á mánuði, og var því sjerstaklega samþykt af fjárveitinganefnd að gjalda þeim í dönskum kr. Nær því ekki nokkurri átt að nefna það í þessu sambandi. Við sendiherra var samið svo, er hann tók við starfinu, að honum skyldi borgað í dönskum krónum, en það má teljast galli, að það skuli ekki fært út í ísl. krónum í fjárlögum. — Hinu er jeg auðvitað samþykkur hjá hv. þm. Ísaf., að ekki er um aðrar krónur að ræða í íslenskum fjárlögum en íslenskar.
Hv. þm. kvartaði um, að reikningurinn væri ekki nægilega sundurliðaður. Jeg vil benda honum á, að frá upphafi hefir það verið siður að sundurliða hann á svipaðan hátt og fjárlögin. Það er ekki vikið frá þeirri venju nema að litlu leyti í fáum liðum. En það getur verið álitamál, hvort ekki ætti að sundurliða hann frekar. En ef hann væri mjög sundurliðaður, svo að alt sæist, þá yrði hann geysilangur og kostnaðarsamur. Hann sagði, að ríkisgjaldanefndinni hefði ekki tekist að sundurliða reikninginn nægilega, en það er galli, sem hún á að snúa sjer með til hinnar umboðslegu endurskoðunar, en ekki til endurskoðenda LR.
Þá mintist hv. þm. á aukavinnulaun, sem greidd væru ýmsum starfsmönnum ríkisins. Hvað snertir kennara, þá er ákveðið í lögum, hvað margar stundir þeir skuli kenna daglega. Meira er ekki hægt að heimta af þeim. En ýmsir kennarar taka að sjer tímakenslu að auki, og er borgað sjerstaklega fyrir hana. Það getur verið, að þetta sje óheppilegt, en gildandi lög mæla fyrir, hvað hægt er að heimta af þeim fyrir laun þeirra. Og það er engu verra að borga þeim fyrir aukavinnu en taka aðra til að vinna það. Svipað er að segja um stjórnarráðsritarana. Þar er ákveðinn skrifstofutími. Sumir vilja gjarnan vinna lengur. Og ef verk er til, þá er ekkert á móti því að láta þá vinna það. Það er ekkert betra að taka aðra til þess. Hitt má vel vera, að rjettara sje að heimta af þeim lengri vinnutíma og gjalda þeim hærra kaup, en það er ekki hægt samkvæmt gildandi launalögum.
Þá skildist mjer á hv. þm., að hann hefði ekki orðið var við reikninga landhelgisjóð. Það er sorglegt, því þeir eru birtir í stjórnartíðindunum. Hvenær reikningurinn fyrir árið 1926 var saminn, það man jeg ekki nú, en vel getur verið, að því hafi ekki verið lokið í ágústlok, þegar jeg fór frá. Reikningshald landhelgisjóðs hefir verið lítið, þar til Óðinn kom. Það var lítið annað en taka á móti sektum. En þetta, breyttist, þegar varðskipin Þór og Óðinn voru keypt.
Hv. þm. spurðist fyrir um hesta landhelgisjóðs, og skal jeg skýra það. Hermálaráðherrann danski tilkynti, að hann mundi koma hingað sem gestur á danska varðskipinu um sumarið. Vildi hann sjá sig um hjerna. Það var ákveðið að láta hann fara til Mývatns frá Akureyri. Það þarf ekki að þykja undarlegt, þótt kostnaður hafi orðið við komu þessa gests. En jeg vona, að háttv. þm. muni taka vægara á því, þar sem ráðherrann var sósíalisti. (HG: Það eru málsbætur). En hann var liðmargur og það þurfti því marga hesta. Hann fór að vísu ekki alla leið til Mývatns sjálfur, en þeir, sem með honum voru, voru svo ákafir, að þeir fóru alla leið. Það er ekki verið að dylja þennan kostnað með því að setja hann á reikninga landhelgisjóðs. Það er ekki hægt, því þeir eru jafnopinberir og landsreikningurinn. En þegar hermálaráðherrann kemur sem yfirmaður skips þess, er hjer er að landhelgigæslu, og óskar að kynnast hjer staðháttum, þá er eðlilegt, að sá kostnaður sje greiddur úr sjóði þeim, sem kostar landhelgivarnirnar. Jeg gat a. m. k. ekki fundið neinn annan sjóð, sem frekar bar að bera kostnaðinn. En fjárhagslega skiftir það engu máli, hvort það er landhelgisjóður eða ríkissjóður, sem kostnaðinn ber.
Hv. þm. sagði, að skaðabætur þær, sem greiddar hefðu verið til Vestmannaeyinga úr landhelgisjóði, hefðu verið ólögmætar. Þetta er bygt á misskilningi. Sýslumaður Skaftfellinga símar til stjórnarráðsins og segir, að í landhelgi sjeu margir erlendir togarar og það verði að vinda bráðan bug að því að senda skip til að handsama sökudólgana. stj. sneri sjer til „Þórs“ og fjekk hann til að fara. En hvaða tími vanst til að spyrja sjútvn. Alþingis um þetta? Þær halda fundi annanhvern dag og hefðu efalaust þurft nokkra klukkutíma til að hugsa sig um. En þá hefðu togarnir efalaust verið komnir burt. Það vildi nú svo til, að „Þór“ handsamaði 4 af þessum togurum, sem allir voru að búa sig af stað, fullfermdir af fiski. Hefði dráttur orðið á þessu, þá hefðu þeir allir sloppið. Vestmannaeyingar áttu skipið, og það gat enginn skipað þeim að láta það fara í þessa ferð fyrir ekki neitt. Það var engin von, að þeir leyfðu skipinu að fara án þess að hafa tryggingu fyrir því, að skemdir þær, sem verða kynnu á veiðarfærum þeirra, yrðu bættar. Enda fór svo þessar nætur, sem „Þór“ var á brott, að togarar fóru í net Vestmannaeyinga og eyðilögðu þau. Það var sjálfsagt að bæta þeim skaðann, einkanlega þar sem landhelgisjóður græddi um 25 þús. kr. á þessari ferð þrátt fyrir það. Mjer er það óskiljanlegt, að hv. þm. skuli álíta þetta óforsvaranlegt. Það var alhægt að senda ekkert skip, lofa togurunum að fara óáreittum. En þá hefðum við ekki fengið 50 þús. kr. í landhelgisjóð og Vestmannaeyingar hefðu ekki beðið tjón á veiðarfærum sínum. En var það betra? Jeg tel það mjög óheppilegt að átelja stj. fyrir það, sem hefir hepnast jafnvel og þetta. Það getur ekki verið um auðugan garð að gresja, úr því svona atriði eru tekin fyrv. stj. til álösunar.
Háttv. þm. mintist þá á sakamálakostnaðinn hjá lögreglustjóra. Hann er að vísu töluvert hár, en það verður þó svo að vera, ef halda á uppi lögum og rjetti í landinu. Hvort hann er óhæfilega hár, þori jeg ekki að segja um, en jeg geri ráð fyrir, að ef svo er, þá reyni hv. þm. að sýna fram á það.
Jeg get tekið undir það með hv. þm., að ekki mundi hafa verið borgað svo mikið upp í aðgerðina á húsi Jóns heitins Magnússonar, ef hann hefði lifað. En eftir lát hans reyndist ekki mögulegt að sundurliða reikningana svo sem þurfti, og þetta var gert með samþykki þingsins. Ef Alþingi vill fá fjeð aftur, þá getur það að sjálfsögðu snúið sjer til ekkju hans og reynt að komast að samningum við hana um að skila einhverju af því aftur. Annars er jeg sannfærður um, að ekki hefir verið hægt að fá konungskomuna ódýrari heldur en með því fyrirkomulagi, sem haft var.
Þá þótti hv. þm. berklavarnareikningarnir vera ónákvæmir. Jeg fæ því varla trúað, því allur slíkur kostnaður er greiddur af ríkisfjehirði sjálfum. Eru reikningarnir geymdir í viðkomandi stjórnarráðsdeild. Hann mintist á taxta hjeraðslækna. Svo var ákveðið 1919, þegar launalögin voru samþ., að þeir skyldu haldast óbreyttir. Taxtarnir eru ákveðnir eftir miklu lægra verðlagi en nú er. Landlæknir hefir sagt, að ef endurskoðun færi fram nú, mundu þeir hækka mikið. En það var tilgangur Alþingis 1919 að hækka laun lækna, en ekki þeirra aukatekjur.
Um eftirgjöf á tekju- og eignarskatti í Gullbringu- og Kjósarsýslu get jeg ekkert sagt. Mjer er ókunnugt um það, en jeg geri ráð fyrir, þar sem upphæðin er svo há, að hún sje samsafn frá mörgum árum. Það hefir verið siður að bíða, nema því aðeins, að það hafi komið í ljós annaðhvort með lögtaki eða fjárnámi, að greiðsla væri ófáanleg. Jeg þekki til þess víðar, að upphæðin er samsafn frá nokkrum árum, af því að sýslumenn senda ekki skýrslu árlega, meðfram vegna þess, sem jeg nefndi, og vegna þess að ekki hefir verið tækifæri til að láta fjárnám fara fram, áður en þeir hafa sent sinn reikning. Svo er þetta látið dragast, í stað þess, að það hefði að rjettu lagi átt að strikast út. Oft verður einnig að bíða eftir skiftum á dánar- og þrotabúum.