23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2045 í B-deild Alþingistíðinda. (1037)
3. mál, landsreikningar 1926
Frsm. (Halldór Stefánsson):
Að svo komnu er ekki hægt neitt við þessu að gera nema þá taka málið út af dagskrá. En málið er nú svo fljótt á dagskrá aftur síðan seinast, að lítill tími hefði verið til að afla þessarar skýrslu, þótt reynt hefði verið.