21.01.1928
Neðri deild: 3. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2048 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)
24. mál, hegningarlög
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Þetta frv. er hugsað sem bráðabirgðabreytingar á hegningarlögunum, og í aths., sem því fylgja, er tekið fram, í hverju þessar breytingar eru fólgnar.
Hegningarlög okkar eru nú orðin úrelt að mörgu leyti, og er það engin furða, þar sem þau eru frá 1869. Hafa á þeim tíma, sem liðinn er síðan þau voru sett, orðið miklar breytingar á hugmyndum manna um hegningarmál. Þó að menn hafi lengi fundið, að full þörf væri á að breyta hegningarlöggjöfinni hjer á landi, hafa þó engar verulegar breytingar verið gerðar. Hefir það verið alment viðurkent, að hjer væri um það vandamál að ræða, sem ekki mætti flana að. Hafa menn því heldur kosið að bíða um stund og sjá, hvað gerðist um þessi mál hjá nágrannaþjóðunum, og þá með það fyrir augum, að eitthvað yrði á breytingum þeirra að græða.
Síðastl. haust var hjer í Reykjavík háð lögfræðingaþing, er samþ. áskoranir til þings og stjórnar um að endurskoða hegningarlöggjöf landsins hið allra fyrsta. Nú er það vitanlegt, að á þeim 4 mánuðum, sem liðnir eru síðan stjórnarskiftin urðu, hefir ekki verið unt að vinna að gagngerðri breytingu á hegningarlöggjöfinni. Til þess þarf rækilega endurskoðun hennar, sem að sjálfsögðu tekur ekki skemri tíma en heilt ár, enda er ekki ósennilegt, að talsverður tími líði enn, þangað til löggjöf þessari verður komið í viðunanlegt horf. Stjórnin vildi nú samt verða við kröfunum um breytingar á hegningarlögunum, að svo miklu leyti, sem hún sá sjer fært með þeim stutta fyrirvara, sem hún hafði. Þetta er önnur aðalástæðan til þess, að þetta frv. er borið fram. En jafnframt er það afleiðing af öðru frv., sem hjer er á ferðinni, um byggingu nýs fangahúss. Af því að auðsætt er, að ekki getur dregist lengur að reisa nýtt hegningarhús, rjeði stjórnin einn af helstu lögfræðingum bæjarins til þess að gera till. um þær bráðabirgðabreytingar á hegningarlögunum, sem bornar eru fram í þessu frv.
Annars get jeg ekki komist hjá því að minnast dálítið á hegningarhúsið. Þó að það kunni á sínum tíma að hafa fullnægt þeim kröfum, sem þá voru gerðar til þess, er það nú orðið gamalt, eins og menn vita. Og þó að það væri reist í útjaðri bæjarins, hefir bygðin færst svo út, að það er nú inni í miðjum bænum. Og eftir því sem lögbrotum hefir fjölgað síðustu árin, er húsið orðið alt of lítið, svo að ekki er hægt að einangra fanga eins og stendur.
Nú á tímum hallast allur þorri sjerfróðra manna að því, að fangelsin eigi ekki að vera í bæjunum, heldur uppi í sveit, þannig að fangarnir fái að vinna ýmiskonar útivinnu. Í þessu frv. eru gerðar ráðstafanir til þess, að hægt verði að breyta þeirri innilokun, sem nú á sjer stað, í holt starf.
Þá hafa verið tekin inn í frv. nokkur atriði önnur, t. d. um fjárhættuspil og önnur afbrot, sem telja má að stafi af því, að lifnaðarhættir eru orðnir fjölbreyttari hjer nú en áður. Þau ákvæði stefna í nútímaátt, og vænti jeg, að þau verði talin til bóta. Að lokum vil jeg mælast til, að frv. verði, að umr. lokinni, vísað til allshn.