05.03.1928
Neðri deild: 39. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2062 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)

24. mál, hegningarlög

Frsm. meiri hl. (Gunnar Sigurðsson):

Jeg þarf í rauninni ekki miklu að svara. Það er nú auðvitað sama og að ræða um keisarans skegg að ræða um orðabreytingar; þó finst mjer einkennilegt að hafa á móti þeim, ef þær eru til bóta. Og jeg held, að engum manni með fullri skynsemi geti blandast hugur um, að þær eru allar til bóta. Til dæmis finst mjer ekki ætti að nota orðið „fjárglæfraspil“, þar sem löggjöfin leyfir þetta í einu tilfelli, — og á það þá að teljast spilling? Hvað mundu til dæmis Englendingar segja, ef þeir fengju ekki að veðja? Mjer finst satt að segja hv. frsm. minni hl. og hæstv. dómsmrh. vera of einstrengingslegir í þessu efni. Það ætti líka að vera talsverð trygging í því, að þeir tveir lögfræðingar, sem sæti eiga í nefndinni, eru á einu máli og hafa báðir lagt talsverða vinnu í þetta, fyrst hvor í sínu lagi og síðan í sameiningu. Það er tekið fram í frv., að spilamenska teljist ekki heiðarleg atvinna. Þetta er alveg sjálfsagt, eins og það telst ekki heiðarleg atvinna að selja áfengi eða drepa menn, enda veit hver maður, að þetta er bannað með lögum áður, og þyrfti því ekki að setja þetta ákvæði inn hjer.

Jeg er auðvitað alveg sammála hæstv. dómsmrh. um það, að hegningarlögin eigi að endurskoða, en jeg er hinsvegar ekki alveg eins bjartsýnn og hann á það, að tveir menn geti leyst það verk af hendi svo vel sje á tveim árum. Það hefir tekið allar menningarþjóðir lengri tíma, sjerstaklega vegna þess, hvað hugsunarháttur manna hefir breytst mikið, og á það sjer ekki síst stað hjá okkur. Jeg get ekki sjeð, að það sje neitt erfiðara að koma vinnuskyldu að, þó að okkar brtt. verði samþ.

Í greininni stendur: „sá, sem veitir húsaskjól fyrir óleyft glæfraspil, skal sæta sektum eða fangelsi“. Þessu verður að breyta. Jeg fullyrði, að allir lögfræðingar mundu samþykkja það með mjer. Ætlunin hlýtur að vera sú, að lögin taki aðeins til þeirra, sem gera þetta af ásettu ráði. En greinin getur einnig átt við þá, sem ekkert vita um, að glæfraspil eigi sjer stað í húsum þeirra. (Dómamrh. JJ: Þeir yrðu aldrei dæmdir). Má vera, en þrátt fyrir það er ekki ástæða til að hafa ákvæðið svona. En jeg mun nú ljúka máli mínu og fela hv. deild að ráða úrslitum, en trúi ekki öðru en hún gangi inn á brtt. okkar meirihl.-manna.