05.03.1928
Neðri deild: 39. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2063 í B-deild Alþingistíðinda. (1061)

24. mál, hegningarlög

Sigurður Eggerz:

Mjer þykir leitt, að hæstv. dómsmrh. skuli ekki sjá sjer fært að nema burt dönsku ákvæðin úr frv. þegar á þessu þingi. En jeg geng þó út frá því, að ef einhverjum tækist að orða sæmilega brtt. fyrir 3. umr., mundi stjórnin ekkert hafa á móti því, að hún yrði samþykt. (Dómamrh. JJ: Það er orðið áliðið þings). Ójá, en ekki svo, að ekki mætti vinnast tími til þessa. Þinginu verður væntanlega ekki lokið fyrir páska.

Jeg vil þá lítillega minnast á 7. gr. frv. samskonar ákvæði og þar munu ekki vera í gildandi hegningarlögglöf. (Gunns: Nei, þau eru í fátækralögunum). Já, í fátækralögunum, 47.–49. gr., eru nokkur ákvæði í þessa átt. En vel má þó segja, að hjer sje um nýmæli að ræða, en þar sem hjer er aðeins verið að setja bráðabirgðabót á gamalt fat, þá er óþarfi að leiða hjer inn nýmælin fyr en eftir nákvæmari rannsókn. Yfirleitt — og síst á þessu sviði — ætti ekki að gefa lög nema reynslan sýndi nauðsyn þeirra. En er nú nokkur brýn nauðsyn á þessum ákvæðum? Má ekki una fyrst um sinn við ákvæði fátækralaganna? Og mjer er spurn: Hafa þau verið mikið notuð? Eftir þeim upplýsingum, sem jeg hefi fengið, hafa þau verið sáralítið notuð. Þegar jeg var sýslumaður, kom ekki fyrir eitt einasta tilfelli, sem fallið hefði undir þessi ákvæði.

Það mun rjett, að svona ákvæði sjeu í danska lagafrv. En það er nú um þetta góða frv. að segja, að það er ekki ennþá orðið að lögum, þó það hafi gengið í gegnum margar góðar hendur. Það á ennþá eftir að fara gegnum mesta hreinsunareldinn, sjálft löggjafarvaldið.

Jeg vil svo að endingu skjóta því til hæstv. stj. og hv. nefndar að athuga málið vel fyrir 3. umr. Jafnframt skal jeg taka það fram, að jeg vil heldur brtt. en frvgr., en mun þó greiða atkv. á móti hvorutveggja.