02.03.1928
Neðri deild: 37. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í B-deild Alþingistíðinda. (108)
1. mál, fjárlög 1929
Sigurður Eggerz:
Jeg á eina brtt. við þennan kafla fjárlaganna, á þskj. 353, VI. lið, að við 13. gr. B. II. a. 2. komi nýr liður: Vesturlandsvegur (frá Dalsmynni að Fellsenda) 10000 krónur.
Þessi viðbót er ekki nýr gestur hjer á hinu háa Alþingi, því samskonar till. hefir verið samþykt áður hjer á Alþingi og stóð í síðustu fjárlögum. Þáverandi þm. Dal. (Jón Guðnason) gerði þá ítarlega grein fyrir þörfinni. Get jeg vísað til þess nú, því jeg geri ráð fyrir því, að margir hv. þm. muni eftir því. Í síðustu fjárlögum voru veittar til þessa 10000 kr. Eini gallinn á þessu er sá, að vegamálastjóri er enn ekki búinn að mæla og áætla þennan veg. Jeg mæltist að vísu til þess, að hann gerði það síðastliðið sumar, en tími vanst þá ekki til þess. En nú mun verða hafist handa um þetta svo fljótt sem verða má, ef til vill strax í aprílmánuði, ef tíð leyfir. En þó þessi rannsókn hafi enn ekki farið fram, þá er engin ástæða til að vera móti þessari fjárveitingu, því jafnvel þótt rannsóknin sýndi það, að ekki væri hægt að leggja veg yfir Bröttubrekku, þá er þó þörf á að leggja veg inn Bjarnadal, og mundi sá vegur koma að notum fyrir því. Dalamenn hafa einmitt óskað eftir því, að á þessum vegi væri byrjað frá Dalsmynni, svo bæði Mýrasýslubúar og Dalamenn myndu hafa gagn af byrjuninni. Þörfin á að koma Dalasýslu í vegasamband er brýn. Þáverandi þm. Dal. gat þess í fyrra í ítarlegri ræðu, að samband Dalamanna við vegakerfið væri sama nú og það hefði verið frá landnámstíð: Samgöngur á sjó eru líka mjög takmarkaðar, þó þær sjeu skárri nú en áður var. En aðalatriðið fyrir Dalamenn er að fá veg inn fyrir Bröttubrekku. Dalir eru landbúnaðarhjerað og vel fallnir til ræktunar. Landbúnaður hefir því skilyrði til að aukast þar að stórum mun. En lyftistöngina vantar: samgöngur, vegi. Þegar þessi vegur er kominn þarna vestur yfir, þá munu fljótlega æðar frá honum kvíslast út yfir meginhluta sýslunnar, nothæfir fyrir bíla. Það er því að vonum, að Dalamenn þrá þennan veg. Hann á að tryggja þeim samgöngur með afurðir þeirra. Og þeir hafa alls ekki óskað eftir því, að byrjað sje Fellsendamegin á veginum, heldur þvert á móti, að byrjað sje hjá Dalsmynni. Höfuðatriðið er að fá veg yfir Bröttubrekku, eða líklega þar nálægt. Jeg skal geta þess, að þótt yfirlit vanti yfir þennan væntanlega veg, þá hefi jeg þó talað við vegamálastjóra um þetta, og hann hefir sagt mjer, að ekki væri örðugur nema 5 km. kafli. Er það yfir Bröttubrekku, eða þar sem vegurinn verður ákveðinn yfir skarðið. En þar sem þessi leið er mjög slæm á vetrum, þá er þörfin mikil að leggja þarna veg sem allra fyrst. — Hjer er ekki farið fram á nema litla upphæð, en þar sem hagur ríkissjóðs er þröngur nú, þá þótti rjett að gera ekki harðar kröfur til hans.
Það er best að vera hreinskilinn og segja frá því, að sumir hafa talið þetta pólitískan veg. En það er ekki satt. Allir vegir eru ópólitískir í eðli sínu, því öllum pólitískum flokkum er umferð um vegina jafnheimil. En ef til væru pólitískir vegir og einhverjir ættu skilið að fá þá, þá væru það sjálfsagt þeir, sem skara fram úr, og á hina pólitísku Bröttubrekku hafa engir sótt fastara en Dalamenn. Jeg geri ráð fyrir því, að háttv. dm. greiði eingöngu atkv. vegna nauðsynjar þessa máls og að þeir skilji það, hvert nauðsynjatriði þessi vegur er, því að ef Dalamenn fá þennan veg, þá verða þeir líkt settir og efri hluti Borgarfjarðarhjeraðs með að koma vörum sínum á markað. Vona jeg því, að þar sem áhugi er að vakna fyrir landbúnaði, bæði úti um land og hjer á Alþingi, þá reiði þessari litlu fjárveitingu vel af. Samgöngurnar verða ávalt einhver helsta stöng landbúnaðarins.