02.03.1928
Neðri deild: 37. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (110)
1. mál, fjárlög 1929
Jóhann Jósefsson:
Jeg skal fúslega taka til greina tilmæli hæstv. fjm.rh. um að viðhafa sem minsta mælgi og málalengingar um fjárlagafrv. yfirleitt. Jeg vona þó, að hann afsaki, þó að jeg mæli hjer nokkur orð vegna þeirra brtt., sem jeg hefi leyft mjer að bera fram og hjer liggja fyrir, því að það er nauðsynlegt hverjum þm. til þess að geta skýrt tilgang sinn með till.
Jeg hefi leyft mjer að bera fram þá ósk Vestmannaeyjabæjar, að Alþingi mætti þóknast að veita 20 þús. kr. til þess að koma upp röntgen- og ljóslækningum við hið nýja sjúkrahús Eyjanna. Þessu sjúkrahúsi hefir verið komið upp mest fyrir forgöngu eins manns, Gísla J. Johnsens konsúls. — Auk hans hafa nokkrir einstakir menn og sjóðir lagt fram nokkurn fjárstyrk, og lítilsháttar upphæð kom frá útlöndum, en sjálfur hefir hann að sögn lagt langmest fram. Byggingunni hefir þannig verið komið upp með fjárframlögum úr Vestmannaeyjum eingöngu, þegar frá eru talin þau fáu þúsund, sem Englendingar lögðu til, án þess að leitað væri til ríkissjóðs.
Jeg geri nú ráð fyrir, að hv. þdm. sjeu sammála um, að þetta sje nokkuð einstakt í sinni röð og gott, þegar þess háttar stofnanir komast upp fyrir dugnað einstaklinga án þess að ríkissjóður þurfi nokkuð að leggja til, þó vitanlegt sje, að slíkt hefir áður komið hjer fyrir; en það er sjaldgæft. Jeg vona nú einnig, að jeg megi treysta því, að Alþingi líti svo á, að þetta sje svo mikilsvert, að vert sje að taka tillit til þess, að þeir, sem hlut eiga að máli, hafa forðað ríkissjóði frá miklum útgjöldum. Því að vitanlega er reglan sú við sjúkrahúsbyggingar hjer á landi, að ríkissjóður leggi fram að minsta kosti 1/3 kostnaðar við bygginguna.
Bæjarsjóður hefir nú lagt fram 30 þús. kr. í reiðu peningum, og hann kemur auk þess til að kosta miklu meira til við ýmislegt, sem stendur í beinu sambandi við spítalann, t. d. að afla vatns, sem er mjög erfitt, og svo að leggja sjerstakt skólpræsi frá spítalanum alla leið út í sjó. Bærinn lagði einnig til heppilega lóð, sem einstakur maður átti rjett á. Það mun því ekki of í lagt, að bæjarsjóður leggi þarna beint til um 50–60 þús. króna.
Hvað byggingin hafi kostað uppkomin, get jeg ekki sagt um með vissu, en húsameistari ríkisins og landlæknir telja, að hún muni hafá kostað um 160 þús. kr., og sumir telja nokkru meira. Það, sem bæjarstjórnin fór fram á, var því aðeins 1/3 þeirrar upphæðar, sem ríkissjóður annars hefði orðið að leggja til, ef farið hefði verið eftir venju í þessum efnum.
Jeg sje nú af áliti hv. fjvn., að landlæknir hefir gefið nefndinni ráð og talið röntgenlækningastofu nauðsynlega, en ljóslækningastofu ekki, af því að slík stofnun væri til í Vestmannaeyjum. Jeg skal nú ekki neita því, að hún sje til, en hún er einstaksmanns eign og því miklu dýrari fyrir almenning en ef hún væri í spítalanum, sem rekinn er af bænum. Rekstur stofunnar einnar úti í bæ verður líka altaf dýrari en ef hann kæmi inn í rekstur spítalans í heild. Auk þess er annars að gæta, og það er, að margir sjúklingar eru þannig á sig komnir, að ekki er hægt að flytja þá milli húsa.
Jeg verð að lýsa því hjer yfir, að bæði mjer og öðrum úr þessu kauptúni hefir fundist þær heldur stjúpmóðurlegar till. landlæknis í þessu máli. Við höfum vænst þess, að það starf, sem hjer hefir verið unnið og jeg hefi lýst, mundi verða metið á þann veg, að fjárveitingavaldinu mundi vera ljúft að verða við óskum bæjarstjórnarinnar um þetta.
Hv. fjvn. hefir nú lagt til, að veittur sje venjulegur styrkur til röntgentækja; jeg býst við, að hún geri ráð fyrir, að þau kosti 9 þús. kr. Mjer finst nú, að hv. fjvn. og þingið í heild ætti að taka svo mikið tillit til þess, að hjer hefir, sjerstaklega fyrir dugnað eins manns og svo hjeraðsbúa, verið ljett svo mikilli byrði af ríkissjóði, að vert væri viðurkenningar, og með það fyrir augum hefði jeg getað vænst þess, að þessari málaleitan væri vel tekið.
Jeg hefi nú leyft mjer að bera fram brtt. við 12. gr. 15. b, um að fyrir 18000 komi 35000, með það fyrir augum, að viðbótin gangi til sjúkrahússins í Vestmannaeyjum. Það má vera, að það sje yfirsjón af mjer að taka þetta ekki fram sjerstaklega í till., en verði hún samþ., er auðvelt að bæta aths. um það við við 3. umr.
Jeg vænti, að hv. þdm. sýni þessu máli meiri velvilja en hv. fjvn. hefir gert og örvi með því einstaka menn og hjeruð til þess að koma upp svo þörfum stofnunum, sem hjer er um að ræða, án þess að leitað sje styrks úr ríkissjóði.
Þá hefi jeg leyft mjer að bera fram aðra brtt. undir IV. lið, um 6 þús. kr. til styrktar mönnum, sem þurfa að fá sjer gervilimi, og til vara 5000 kr. samskonar till. flutti hv. 1. þm. N.-M. (HStef) hjer í þessari hv. deild í fyrra, og jeg aðra nokkru lægri í Ed., en þær náðu því miður ekki fram að ganga. Að því er snertir greinargerð fyrir þessu nægir að vísa til þess, sem hv. 1. þm. N.-M. og jeg færðum fram á síðasta þingi. Jeg sje því ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta, en það er öllum vitanlegt, að þeir menn, sem verða fyrir þeirri óhamingju að missa limi, hafa fæstir nokkur tök á því að fá sjer gervilimi, og það er auðsætt, að það ætti að vera til hagsbóta fyrir þjóðfjelagið að gera þessa menn vinnufærari og afkomufærari en ella og gera þeim um leið lífið bærilegra og lífsbaráttuna. Þjóðfjelagið hefir sjálft hag af því um leið og það hjálpar einstaklingunum.
Það hefir komið fyrir, að þinginu hafa borist beiðnir frá einstökum mönnum um styrk í þessu skyni, en jeg tel, að rjettara sje að veita hæfilega upphæð í einu lagi, sem stjórnin hafi til umráða, og að viðkomandi menn sæki svo um styrkinn til hennar.
Það er sennilegt, að allar ástæður verði betur athugaðar, ef stjórnin hefir úthlutunina á hendi en ef teknar eru beiðnir frá einstökum mönnum og bornar fram á Alþingi. Þm. hafa yfirleitt ekki tíma til að kynna sjer eins allar ástæður eins og stjórnin ætti að hafa.
Auðvitað er þá sjálfsagt, að umsóknunum fylgi vottorð bestu manna, svo sem presta, yfirvalds eða lækna, þar sem mælt sje með styrknum. Jeg vænti nú, að þrátt fyrir það, að till. okkar hv. 1. þm. N.-M. náðu ekki samþ. í fyrra, að Alþingi sjái sjer fært að veita einhverja dálitla fjárhæð til þess að bæta kjör þessara manna og gera þá um leið nýtari borgara í þjóðfjelaginu. Enda er oftast svo ástatt fyrir þeim sjálfum, að þeir eru þess ekki megnugir að kaupa sjer gervilimi. Og þó að samskota sje oft leitað, þá er það ekki nærri altaf, og það sýnist viðfeldnara, að þessir menn gætu átt von á einhverjum styrk, öðrum en sveitarstyrk, þegar þeir verða fyrir þessum slysum.
Þá vil jeg taka undir ummæli hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) að því er vitana snertir. Mjer finst það ákaflega óviðfeldið, að ekkert fje sje veitt til að auka og bæta vitakerfi landsins. Það er langt frá, að það sje eins fullkomið eins og í nágrannalöndunum, og er þó óvíða eins mikil þörf á fullkomnu vitakerfi eins og hjer. Vitanlega er ekki hægt að heimta alt af ríkissjóði, en jeg álít, að aldrei megi falla niður að veita eitthvað til þessa máls og stöðugt verði að vinna að því að koma á og viðhalda sem fullkomnustu vitakerfi á ströndum landsins.