25.02.1928
Efri deild: 32. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (1117)

30. mál, tilbúinn áburður

Páll Hermannsson:

Vegna þess, að á það hefir verið minst, að það væri ef til vill rjettast að taka málið út af dagskrá, og þetta verið sett í samband við mig, vil jeg geta þess, að jeg óska ekki eftir, að svo verði gert. Jeg gat þess við 2. umr., að þær breytingar, sem jeg óskaði, að gerðar yrðu á frv., yrðu bornar fram í samráði við háttv. nefnd. Og í samráði við nefndina hefi jeg tekið þá ákvörðun að láta við svo búið standa nú. Þar af leiðandi óska jeg ekki eftir, að málið verði tekið út af dagskrá.