02.03.1928
Neðri deild: 37. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í B-deild Alþingistíðinda. (112)
1. mál, fjárlög 1929
Frsm. (Ingólfur Bjarnarson):
Jeg hefi ekki ástæðu til að tala langt mál, því að mjög litlar aths. hafa verið gerðar við till. fjvn. Get jeg verið þakklátur fyrir hennar hönd fyrir þær móttökur, er till. hennar hafa fengið. En það eru nokkrar till. á þskj. 353 frá einstökum þm., sem jeg þarf að gera grein fyrir fyrir hönd nefndarinnar. Skal jeg þá leyfa mjer að byrja á 1. till., sem er frá háttv. 2. þm. Reykv., hv. þm. Ísaf. og hv. 4. þm. Reykv., um að skólagjöld falli niður. Eins og hv. 1. flm. till. drap á, hafa samskonar till. komið fram áður á undanförnum þingum, en ekki náð samþykki. Jeg get strax lýst því yfir fyrir hönd nefndarinnar, að meiri hluti hennar leggur á móti þessari till. Mjer fanst hv. flm. sjerstaklega byggja á því, að fátækum nemendum væri íþyngt með þessum skólagjöldum. Þetta er ekki rjett, þar eð skólagjöldin munu gefin eftir, þegar fátækir nemendur eiga í hlut. Til grundvallar skólagjöldunum liggur aðstöðumunur utan- og innanbæjarmanna. Það kostar utanbæjarmenn svo miklu meira að koma sínum börnum í gegnum skólann, að það er ekki nema sanngjarnt, að sæmilega stæðir borgarar bæjanna greiði skólagjald fyrir börn sín, þau er skóla sækja innanbæjar. Má til skýringar þessu benda á hina geipilegu húsaleigu, er utanbæjarnemendur verða að borga hjer í Reykjavík t. d. Þetta er svo auðskilið mál og einfalt, að óþarfi er að fara um það mörgum orðum. En jeg legg áherslu á það, að ekki sje rjett að skoða skólagjöldin hindrun fyrir fátæka nemendur í bæjunum, þar sem ekki er ætlast til að heimta af þeim skólagjald, nje heldur mun það gert. Mun jeg svo ekki fara fleiri orðum um þessa till., en held fast við skoðun meiri hlutans, að þessi till. eigi ekki fram að ganga.
Næsta till. á sama þskj. er frá hv. þm. Vestm., um að hækka styrkinn til sjúkraskýla um 17 þús. kr.
Fyrir nefndinni lá beiðni frá bæjarstjórn Vestmannaeyja um að fá greiddan kostnað við að koma upp röntgen- og ljóslækningatækjum við hinn nýreista spítala í Eyjum. Þessari beiðni fylgdu sundurliðaðar áætlanir um kostnað við að koma upp þessum tækjum, kr. 20000.00, sem farið er fram á í erindi bæjarstjórnar, að ríkið kosti að öllu.
Hv. þm. lagði mikla áherslu á það, hvað ríkið slyppi vel við að borga til þessa spítala, og það er líka höfuðástæðan hjá hv. þm. fyrir því, að ríkið sleppi þeirri meginreglu þarna, sem hingað til hefir ætíð gilt, að ríkið greiði 1/3 af byggingarkostnaðinum. Hann tók það fram, að það væri alveg einsdæmi, að bygður væri spítali án þess að ríkið legði neitt fram. (JJós: Jeg sagði því nær einsdæmi). Það mætti þó benda á Akureyrarspítalann, sem bygður var upphaflega algerlega af einstakra manna gjöfum og án nokkurs tillags úr ríkissjóði. Hinsvegar var síðar bætt við spítalann og þá til þess veitt 1/3 framlag frá ríkinu, og eins þegar komið var upp ljóslækningatækjum þar síðar.
Hv. flm. talaði um það, að rjett væri, að ríkið tæki tillit til þeirrar fórnfýsi, sem almenningur hefði sýnt, svo og líka hve bæjarsjóður Vestmannaeyja hefði lagt mikið fram til byggingar spítalans, bæði með beinu fjárframlagi og með því að leggja til lóð undir hann.
Jeg held nú, að spítalalóðir sjeu hvergi taldar með í kostnaðinum, þegar framlag ríkisins hefir verið ákveðið. Landlæknir hefir upplýst fyrir nefndinni, að bænum hafi verið gefinn þessi spítali uppkominn með því ákveðna skilyrði frá gefandans hendi, að bæjarsjóður gerði ekki kröfu til styrks frá ríkinu, og gat nefndin ekki annað skilið en að bærinn hefði gengið að því. Með það fyrir augum virðist nokkuð óviðfeldið, að krafist sje framlags nú frá ríkinu til byggingarinnar.
Að öðru leyti áleit landlæknir mjög nauðsynlegt að koma upp röntgentækjum við spítalann og lagði til, að ríkið greiddi þar sinn venjulega hluta, en hinsvegar væri ekki þörf á ljóslækningatækjum að sinni, þar eð þau væru til í Eyjum, mjög góð. Nefndin áleit því sanngjarnt að ganga ekki lengra en að greiða 1/3 af kostnaði við þessi röntgentæki. Hinsvegar vil jeg geta þess um þá kostnaðaráætlun, sem fyrir nefndinni lá um það, hve mikið tækin mundu kosta, að mjer hefir verið sagt, að sú áætlun sje í allra hæsta lagi. (JJós: Hver hefir sagt það?). Einn af prófessorum við háskólann hefir sagt, að hægt væri að fá ágæt tæki miklu ódýrari. — Af þessum ástæðum öllum hefir nefndin ekki getað fallist á að mæla með þessari till.
Þá kemur 3. brtt., frá háttv. 2. þm. Reykv., um hækkun á styrk til berklahjúkrunarfjelagsins Líknar. Nefndin vill að sjálfsögðu viðurkenna, að starf þessa fjelags er bæði mikið og gott, en hinsvegar lítur hún svo á, að styrkur sá, sem fjelagið nýtur frá ríkinu, sje tiltölulega mikill, samanborið við það fje, sem fjelagið hefir frá bæjarsjóði Rvíkur. Og án þess að draga úr hinu góða starfi fjelagsins vill nefndin benda á það, að víða úti um land eru smærri fjelög, sem hafa sömu stefnuskrá og vinna í sömu átt og einskis styrks njóta úr ríkissjóði. Niðurstaða nefndarinnar er því sú, að meiri hlutinn telur ekki fært að hækka styrkinn frá því, sem verið hefir og ákveðið hefir verið í fjárlagafrv.
Þá kemur 4. brtt., frá hv. þm. Vestm., að ríkissjóður leggi fram 6000 kr., og til vara 5000 kr., til styrktar þeim mönnum, er þurfa að fá sjer gervilimi. Það væri sjálfsagt mjög æskilegt, ef hægt væri að hjálpa sem flestum af þeim mönnum, sem verða fyrir slysum og hverskonar veikindaóláni, en nefndin telur, að slíkt mundi ríkinu ofvaxið og sjer ekki fært að taka þessa menn, er hjer um ræðir, umfram aðra hvað þetta snertir.
Jeg vil um leið taka það fram, að ríkið hefir árlega lagt fram lítilsháttar styrk til þess að hjálpa þessum mönnum, þar sem ákveðnum manni er veittur styrkur til þess að smíða gervilimi. Og er það ofurlítill ljettir fyrir þá menn, er þá þurfa að fá, því að með því móti eru þeir þó til í landinu og verða þannig ódýrari.
Hinsvegar er hætt við því, þótt þessi till. yrði samþ., að örðugt reyndist að skifta þessari upphæð svo, að allir þessir menn fengju hjálp. Nefndin hefir hví ekki sjeð sjer fært að mæla með þessari till.
Þá kemur 6. brtt., frá hv. þm. Dal., um að veitt sje fje til svonefnds Vesturlandsvegar, 10000 kr. Nú er, eins og hv. flm. gat um, þetta vegarstæði alveg órannsakað. Vegamálastjóri hefir talað við nefndina viðvíkjandi þessari till. Telur hann órannsakað, hvar og hvernig vegur þessi á að liggja. En það muni nú gert, þegar tími vinnist til.
Eins og sjest á nál., hefir nefndin ekki sjeð sjer fært að bera fram við þessa umr. hækkun á styrk til verklegra framkvæmda, þótt hún hinsvegar viðurkenni, að þörf væri á að leggja miklu meira fram en frv. gerir ráð fyrir. Af þeim ástæðum hefir meiri hl. nefndarinnar lagt það til, að till. þessi næði ekki fram að ganga að þessu sinni. (SE: Í fyrra var nefndin með því að leggja fje fram til þessa vegar. Er það af pólitískum ástæðum, að hún er núna á móti því?). Hjá nefndinni er alls ekki um nokkra pólitík að ræða í þessu efni, aðra en þá, að sjá hvað verður um tekjuhækkunina, áður en hún ræður til hækkunar verklegra framkvæmda yfirleitt.
Þá kemur 7. till., frá hv. þm. N.-Ísf., um að hækka tillag til nýrra símalagninga um 65000 kr., og sje þeirri hækkun varið til lagningar á símalínu frá Ísafirði til Ögurs o. s. frv.
Í þessu sambandi vil jeg leyfa mjer að skýra frá till. landssímastjóra um byggingu á nýjum símalínum árið 1929 og í hvaða röð hann ætlast til, að þær verði bygðar. Hann hafði ekki gert sjer von um, að stjórnin gæti máske tekið allar till. hans til greina,
en óskaði eftir því, að þær væru teknar í þeirri röð, sem hann setur þær, ef ekki væri hægt að fullnægja þeim öllum.
1. till. hans er, að veittar verði til suðurlandslínunnar 125000 kr. 2. til línunnar frá Akureyri að Víðimýri 130000 kr. 3. til byggingar á loftskeytastöðvum í Grímsey og Flatey 60000 kr. 4. til línunnar milli Ísafjarðar, Ögurs og Snæfjallastrandar, þeirrar, er hjer um ræðir, 65000 kr. og 5. til línu frá Þjórsá til Þykkvabæjar 18000 kr.
Alls nema þessar upphæðir 398000 kr. Nú er það vitanlegt, að eftir till. stjórnarinnar á að veita einar 150000 kr. til þessara framkvæmda, svo það hrekkur skamt til þess að fullnægja öllum þessum kröfum. Eins og deildin veit, hefir nefndin ekki sjeð sjer fært að bera fram till. til hækkunar á framlagi til nýrra símalagninga við þessa umræðu, en telur sjálfsagt, ef tekjuauki fæst, að hækka þá tillagið til þessara framkvæmda. En sökum þess, að nefndin getur ekki borið fram hækkun á þessum lið að svo komnu, verður hún að leggja á móti því, að þessi till. hv. þm. N.-Ísf. verði samþ., heldur verði hún að bíða ásamt öðrum eftir því, hvort tekjuaukafrv. verða samþ. eða ekki. En jeg geri hinsvegar fullkomlega ráð fyrir því, að ekki sjeu miklar líkur fyrir, að þessi till. verði tekin framar en till. landssímastjóra gera ráð fyrir, þó liðurinn verði hækkaður síðar.
Þá kom fram fyrirspurn frá hv. 2. þm. Reykv. út af því, hvort borðfje konungs væri heldur greitt í dönskum eða íslenskum krónum. Þetta kom til athugunar og orða í nefndinni, og var það öllum nefndarmönnum vitanlegt, að upphæð þessi hefir undanfarið altaf verið greidd í dönskum krónum, og leit nefndin svo á, að ekki gæti annað komið til mála en að þeirri venju væri haldið áfram að greiða upphæðina í dönskum krónum, enda sú ráðstöfun samþ. á hverju þingi undanfarið. (HG: Var nefndin sammála um þetta?).
Í nefndinni var talað um þetta, og má vera, að einn nefndarmaður, hv. þm. Ísaf. (HG) hafi haft aðra skoðun á þessu atriði, en það mun ekki hafa komið neitt til atkvæða. En nefndin leit svo á, að þar sem þetta hefir verið þannig framkvæmt um mörg ár, mætti líta svo á, að þetta væri heimilað með venjunni, því aldrei hefir þessu verið andmælt á Alþingi, svo að jeg muni. sama má segja um launin til sendiherra. Í nefndinni kom það fram, að þau myndu hafa verið greidd í dönskum peningum, en nefndin tók þó enga afstöðu til þessa atriðis. Hitt atriðið, um borðfje konungs, kom, eins og áður er sagt, til orða, en meiri hl. nefndarinnar var þeirrar skoðunar, að það ætti ekki við að færa upphæðina niður í íslenskar krónur.