15.03.1928
Neðri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2155 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)

30. mál, tilbúinn áburður

Hákon Kristófersson:

Hv. 1. þm. Reykv. hefir þegar tekið fram margt af því, sem jeg vildi sagt hafa.

Það skýtur svo skökku við um skoðanir mínar og hæstv. atvmrh., sem álítur þetta einkasölumál hreinasta bjargráð fyrir okkur bændurna, að jeg tel frv. lítils virði að öðru leyti en því, að það er til mikils góðs fyrir þá, sem hjer í grend við Reykjavík eða aðra kaupstaði reka búskap í stórum stíl og stunda nýrækt að mestu eða öllu með tilbúnum áburði. Jeg vil nú beina einni spurningu til hæstv. ráðh., sem hann getur svarað beint annaðhvort með já eða nei. Það stendur svo í 2. gr. frv.: „Árin 1929, 1930 og 1931 er ríkisstjórninni heimilt að greiða úr ríkissjóði þann kostnað, sem af því leiðir að flytja tilbúinn áburð bæði frá útlöndum og milli og til allra þeirra hafna, sem skip Eimskipafjelags Íslands og strandferðaskip ríkisins koma á“. Nú spyr jeg hæstv. atvmrh.: Mun hann hugsa sjer að nota þessa heimild? (Forsrh. TrÞ: Já, tvímælalaust). Þá ætlar hann með öðrum orðum að hjálpa efnuðustu mönnunum til þess að flytja áburð sinn til landsins, undir því yfirskini, að verið sje að ljetta undir með bændum úti um sveitir landsins, en þeir njóta minst af, því að eftir er erfiðasti áfanginn, að koma áburðinum frá höfn og upp í sveit. Jeg held, að fullkomlega væri í hóf stilt, ef þessi ljettir væri miðaður við flutninga með ströndum landsins og upp í landið. Reynslan sker best úr, hveriir hafa rjett fyrir sjer. Jeg hefi ekki trú á, að mikil aukning á notkun tilbúins áburðar verði af völdum þessa frv., að minsta kosti ekki í fátækari hjeruðunum.

Það skal vera undantekningarlaus regla, segir í frv., að áburðurinn sje greiddur við móttöku. Þetta ákvæði eitt nægir til þess að útiloka fjölda bænda frá því að geta notfært sjer tilbúinn áburð. Bændur eiga alment ekki svo greiðan aðgang að lánsstofnunum — bæði veldur því fjarlægð og svo líka lítil fjárhagsleg tiltrú —, að þeir hafi ástæður til þess að greiða verðið út í hönd um leið og áburðarsending kemur.

Hæstv. atvmrh. væntir þess, að árangur af þessu máli verði mikill og góður. Jeg geri alls ekkert lítið úr þeim ummælum hans; allra síst dirfist jeg að segja, að þau sjeu að engu hafandi. En jeg er því miður hræddur um, að hann sje of bjartsýnn og þær miklu vonir, sem hann bindur við einkasöluna, reynist tálvonir. Jeg er hræddur um það, en jeg vona, að hrakspá mín rætist ekki. Hver getur annars búist við, að árangurinn verði raunverulega eins mikill og hv. flm. gera sjer vonir um, þegar bæði hjá mjer og öðrum bændum landsins er áburður svo illa hirtur, að stórskaði hlýst af árlega? Hefði átt að snúa sjer að þeirri hlið „áburðarmálsins“ fyrst, reyna að lagfæra heima fyrir fyrst, með málsháttinn „holt er heima hvað“ í huga, áður en farið er að seilast út yfir pollinn eftir áburði. Jeg verð að halda því fram, að áburðarkaup bænda verði aldrei mikil fyrst um sinn, meðan geta manna er að eflast. Þó kann innflutningur áburðar í sjálfu sjer að verða nokkuð ör, því að megnið af aðfluttum áburði er notað í stærri kaupstöðum þessa lands og meiri hluti innflutts tilbúins áburðar er notaður af einum vissum manni í Reykjavík, sem rekur stórbúskap í nágrenninu. En þessi maður hefir fullkomna getu til þess að flytja inn nauðsynlegan forða áburðar til sinna framkvæmda, án þess hann sje styrktur til þess. Og hann hefir betri aðstöðu en nokkur bóndi í sveit, því að þegar áburðurinn er kominn í höfn í Reykjavík, má heita, að flutningnum sje lokið. En þegar hæstv. stjórn og hv. Alþingi vill rjetta fram hendina fulla af fje ríkissjóðs og veita þessum stórefnamanni fjárstyrk í þessu skyni, hví skyldi því þá ekki tekið með þökkum, þó að örlætið sje óþarflega mikið og að mínu áliti ekki í neinu samræmi við getu ríkissjóðs?

Jeg skal fallast á, að meginatriðið í þessu máli, að forðast að óþarfa álagning á þessa vöru eigi sjer stað, er góðra gjalda vert. En hitt, að þessi liður úr áburðarmálinu sje þess virði, að ríkissjóður hafi svo mikla þátttöku í kostnaði, er af því leiðir, það get jeg ekki fallist á. Þegar svo mikið áburðarmagn er til heima fyrir, að komið gæti að því haldi, ef vel væri notað, að við það mætti una fyrst um sinn, þá er jeg ekki óðfús á að fleygja út stórfje í þessu skyni, allra síst þegar það gengur mest til þeirra, sem síst þurfa styrks við.

Vera má, að hæstv. ríkisstjórn hafi gert sjer ljóst, hve mikið fje ríkissjóður þurfi að binda í þessu skyni. Í fjárlögum eru veittar 10 þús. kr. viðvíkjandi þessu. Enginn getur látið sjer detta í hug, að það verði hægt að komast af með þessar 10 þús. kr., þegar á að greiða allan kostnað af flutningsgjöldum fyrir áburðinn bæði til landsins og hafna milli. Það versta er, að þessi kostnaður verður að miklu leyti greiddur í þágu hinna efnaðri manna. Kaupgeta fátækari bænda er ekki svo mikil, að það verði neitt verulegt, sem þeir kaupa af útlendum áburði, síst þegar hann verður skilyrðislaust að greiðast út í hönd. Að tilgangurinn sje góður hjá hæstv. fors.- og atvmrh., það ætla jeg ekki aðeins að vona, heldur slæ jeg því líka föstu. Hvort sá góði tilgangur sje ekki blettaður af áhrifum annara, það skal jeg ekki forsvara. Hæstv. ráðh. talaði eins og sá, sem vald hefir, og ljet ekki alllítið yfir því, að þetta væri seinasti áfanginn, sem þetta nauðsynjamál væri að fara. Jeg hefi sömu aðstöðu til þessa máls og í fyrra og á undanförnum þingum. Jeg er sannfærður um hið gagnstæða og mun greiða atkv. á móti frv., en með brtt. hv. landbn., því að þær eru til bóta, það sem þær ná. Þessi afstaða mín er bygð á því í fyrsta lagi, að jeg hefi ekki trú á einkasölu, og í öðru lagi, að jeg hefi ekki trú á, að þetta mál komi að þeim notum, sem hv. meðhaldsmenn þess og flytjendur frv. vilja vera láta. Hjer er tvímælalaust gripið á öfugum enda. Mitt álit er það, að við eigum að búa svo mikið að okkar sem unt er án þess að sækja til annara. Óhirðing á heimafengnum áburði er okkur síst til sóma, og mundi það geta komið upp á móti ekki alllitlu af tilbúnum áburði, ef hann væri nýttur sem skyldi.

Ræktun í stórum stíl í grend við Reykjavík er ekki framkvæmanleg nema með útlendum áburði. Það skal viðurkent. En það er ótækt, að efnuðustu mennirnir, sem engin ástæða er til að styrkja, njóti þeirra vildarkjara, sem þeim er gefinn kostur á eftir frv. Í sveitunum verður nýrækt og búskapur aldrei með eins stórfeldu sniði og sjáanlegt er, að hægt er að reka í grend við Reykjavík.

Jeg óska hæstv. atvmrh. til lukku með þetta mál, sem hann þykist nú loks vera að draga í trygga höfn. Jeg vænti þess fyrir hans hönd, að vonir hans rætist, þótt jeg hafi ekki sjálfur trú á því. En það tel jeg mishepnað að hafa ekki undirbúið sig svo, að hægt væri — ef ekki með rökum, þá að minsta kosti með líkum — að gera mjer og öðrum grein fyrir því, hverjar afleiðingar þetta mál gæti haft fyrir ríkissjóð.