15.03.1928
Neðri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2176 í B-deild Alþingistíðinda. (1132)

30. mál, tilbúinn áburður

Jón Sigurðsson:

Jeg hefi ekki gert ráð fyrir því að standa upp hjer í dag til þess að segja mitt álit, en það hafa á hinn bóginn orðið það miklar umræður og það fjölbreyttar, að jeg get ekki stilt mig um að leggja þó ofurlítið orð í belg, af því að jeg er að ýmsu leyti ósammála þeim, sem talað hafa um þetta mál, og sem í raun og veru er tvö óskyld mál, einkasala og ívilnun á flutningsgjöldum.

Þetta frv., sem hjer liggur fyrir, er, eins og tekið hefir verið fram, ekki nýr gestur hjer, og jeg hefi á undanförnum þingum verið dálítið við þetta mál riðinn, sjerstaklega um eitt skeið, þegar horfur voru á því, að áburðarverslunin, eða öllu heldur ein tegund áburðar, myndi lenda í höndum eins firma hjer í Reykjavík. Bæði jeg og aðrir óttuðust þá, að það mundi verða til óhags fyrir þá, sem þyrftu að nota þessa vöru, en nú er þessu, eftir því sem mjer skilst, ekki lengur til að dreifa, þar eð hvorki þetta firma eða aðrar verslanir hafa lengur einkaumboð hjer á landi að því er þessar vörur snertir, og af þeim ástæðum er þá einkasalan heldur ekki nauðsynleg.

Þá er næst að gera sjer grein fyrir, hvort þörf er á framlagi úr ríkissjóði til styrktar þeim, er nota tilbúinn áburð, og hverjir fá þennan styrk samkv. frv. Nú er það svo, að bændur landsins njóta óbeinlínis styrks til áburðarkaupa, þar sem er styrkur sá, sem greiddur er samkvæmt jarðræktarlögunum, því hann er, eins og kunnugt er, ekki greiddur fyr en landið er komið í rækt; með öðrum orðum, ekki fyr en búið er að bera á þær landspildur, sem metnar eru. Það er þess vegna gengið út frá því, að um leið og styrkurinn er veittur, þá er hann ekki aðeins veittur til að vinna, heldur og líka til áburðarkaupa. Í þessu sambandi vil jeg taka það fram, að ef þörf álíst að styrkja menn meira til áburðarkaupa, þá myndi það vel hægt, þótt einkasalan væri ekki, og þó að samvinnufjelög bænda og kaupmenn hefðu þessa sölu með höndum, eins og þau hafa haft síðustu árin. Nú mun ástandið vera þannig, að mikið af áburðarversluninni er í höndum tveggja Samvinnufjelaga, hjá Sambandi ísl. Samvinnufjelaga og Mjólkurfjelagi Reykjavíkur. Þessi tvö fjelög munu hafa áburðarsöluna að mestu leyti í sínum höndum; en það getur verið, að eitt firma hjer hafi eitthvað af henni líka. (Forsrh. TrÞ: Nei, firmað Nathan & Olsen hefir langmest). Hæstv. forsrh. skýtur því inn í, að firmað Nathan & Olsen hafi meira. Jeg vil ekki mótmæla því; mjer er það ekki svo kunnugt, en hitt veit jeg, að bæði þessi samvinnufjelög hafa mjög mikla verslun með áburð. Mjer sýnist þess vegna, að landsstjórnin verði, ef þetta frv. gengur fram, einskonar nýr milliliður, og er í stjfrv. gert ráð fyrir, að hún taki sín 5%, en nefndin ætlar henni 2%. En það er óreynt, hver kostnaðurinn verður, nema því aðeins, að það eigi líka að bæta einhverjum gjöldum á ríkissjóð á þennan hátt, en það er vitanlega reynslan ein, sem verður að skera úr því. Annars verð jeg að segja það, að mjer virðist kenna nokkuð mikilla öfga í þessu máli; eins og sakir standa, get jeg ekki kannast við, að þetta sje, eins og tekið hefir verið fram við umr., nokkurskonar höfuðmál bænda. Fyrir mjer er það svo, að á meðan þorri bænda brennir miklu af þeim áburði, sem til felst hjá þeim, þá tel jeg þessa „agitation“ fyrir útlendum áburði, sem hefir verið töluvert mikið rekin hjer, beinlínis ranga. Jeg hygg, að það sje engin hagfræði í því að eggja menn alment á að kaupa tilbúinn áburð dýrum dómum, en nota ekki þann áburð, sem bændur hafa umráð yfir. Jeg lít svo á, að það eigi að vera markmið okkar að nota fyrst og fremst það, sem til felst í landinu sjálfu og við höfum ráð á, áður en við förum að seilast til útlanda eða kaupa útlent efni, þegar við höfum svipað efni heima fyrir. — Notkun tilbúins áburðar er því ekkert höfuðmál fyrir bændur í heild sinni ennþá sem komið er. Höfuðáhersluna á að leggja á það, að bændur noti mó og brenni kolum í stað sauðataðs og bæti þannig úr áburðarskortinum. Auk þess er vitanlegt, að áburðarhirðingu er stórkostlega ábótavant víðast hvar, en það fer reyndar batnandi. Af framansögðu er það ljóst, að jeg tel ekki þörf á þessum styrk, sem frv. gerir ráð fyrir. — Og hverjir njóta svo þessa styrks eða farmgjaldaljettis? Kaupstaðirnir og næstu sveitir. Með eftirgjöf á farmgjöldum til landsins fá þeir áburðinn fluttan ókeypis heim í hlað, sem kallað er, og til Reykjavíkur, Akureyrar og nærsveitanna fer mest af þeim áburði, sem til landsins flytst. Þessi eftirgjöf hefir því mikla þýðingu fyrir kaupstaðina og nágrenni þeirra; það eru peningar í vasann. Nú hafa þessir menn sjerstaklega góða aðstöðu um markað, og hefir hún gert það að verkum, að kaupstaðabúar hafa gerst forgöngumenn á þessu sviði. Þeir hafa hjer því töluverðra hagsmuna að gæta, því að þetta fyrirkomulag verður þeim aðallega til hagræðis, eins og þegar hefir verið tekið fram. En það er svo um mig, að þessara manna vegna sje jeg ekki ástæðu til að verja tugum þúsunda úr ríkissjóði, þó að þeir eigi náttúrlega gott skilið. En vilji nú þingið á hinn bóginn losa ríkissjóð við þessar þúsundir, þá verð jeg enn sem fyr að vera á þeirri skoðun, að þá eigi að verja þessu fje til hjálpar þeim, sem mest þarfnast þessarar hjálpar, en það eru í mínum augum ekki bændurnir kringum kaupstaðina, bændurnir, sem yfir höfuð eiga ljettari aðgang að ýmsum öðrum áburði heldur en stjettarbræður þeirra víðast hvar annarsstaðar. Nei, það eru fyrst og fremst dalabændurnir, þeir, sem fjærst búa verslunarstöðum, bændurnir, sem víða hvar hafa litlar aðrar slægjur en túnblettina, aðeins smábletti utan túns, og þá eðlilega lítinn áburð, en hjá þeim er hver töðubaggi kannske fullgilt fóður fyrir ána. Það eru þessir menn, sem sjerstaklega hafa þörf fyrir að fá nokkra hjálp, og það er einmitt svo, að þessir sömu menn eiga langerfiðast með að fá áburð fluttan heim til sín.

Eftir frv. fær kaupstaðarbúinn áburðinn fluttan ókeypis frá framleiðslulandinu heim til sín, en dalabóndinn verður að borga kannske 100 kr. í flutningsgjald á hvert tonn, komið heim í hlað. Jeg hefi átt tal við menn, sem svona er ástatt fyrir, um þetta mál, og þeir segja allir það sama: Á meðan aðflutningar úr kaupstaðnum eru svona erfiðir og dýrir, er okkur ómögulegt að borga 5–10 krónur undir hestburðinn, fluttan úr kaupstaðnum heim til okkar; það er meira en við erum menn til að standa straum af.

Ef þessu fje, sem hugsað er að verja til þess að ljetta flutningsgjaldið til landsins, væri beint að því að hjálpa þessum mönnum, sem örðugast eiga, þá gæti jeg litið talsvert öðrum augum á málið. (Forsrh. TrÞ: En hví ekki að gera hvorttveggja?:). Það verður ekki gert með þessu fyrirkomulagi. Já, að gera hvorttveggja, það getur maður samþykt, en það er aðeins að fara ennþá dýpra í vasa ríkissjóðs, og jeg held ekki, eins og sakir standa, að það sje nauðsynlegt. En það, sem jeg vildi benda mönnum á í þessu sambandi, og sem jeg held, að væri hyggilegasta leiðin, ef farið væri inn á þessa götu, væri það, að fella niður styrkinn til flutnings á áburðinum frá útlöndum, en taka í þess stað upp þá reglu að styrkja áburðarflutning milli hafna og á landi þannig, að búnaðarfjelögunum væru veitt nokkurskonar verðlaun fyrir notkun tilbúins áburðar, þannig, að búnaðarfjelögin ættu kröfu á hendur ríkissjóði, ef eitthvert ákveðið áburðarmagn væri notað í hreppnum, og yrðu að sanna þá kröfu sína, en jafnframt væri settur nokkurskonar taxti, ef svo má segja, þar sem búnaðarfjelögunum væri gert mishátt undir höfði, eftir því, hve miklir örðugleikarnir væru með að flytja áburðinn. Það er t. d. ekki hægt að jafna saman flutningsörðugleikunum í hreppum kringum kaupstaði, og svo aftur í fremstu hreppum til dala, þar sem menn verja frá 4 dögum til viku í kaupstaðarferðina, eða ef borin er saman vegalengdin fyrir bændur við Reyðarfjörð og bændur efst uppi í Jökuldal, sem mjer er sagt að muni vera 90–100 km., er nokkuð ólík aðstaða. Sú sveit er sögð vera ein af bestu sauðfjársveitum landsins, en aðflutningar ákaflega erfiðir. Ef nokkur sveit hefir hjálpar þörf, þá eru það slíkar sveitir. Þótt gengið sje framhjá því, sem jeg tel mestu skifta í þessu máli, mun jeg þó greiða atkvæði með frv. til 3. umr., til að gefa nefndinni tækifæri til að athuga málið betur og sjá, hvaða breytingum það tekur.

Jeg get ekki stilt mig um að drepa á það að endingu, að ef jeg hefði viljað vera illgjarn í garð landbn., hefði jeg getað sagt, að það sæi á, að Sunnlendingar hefðu verið fjölmennari í nefndinni heldur en Norðlendingar og Austfirðingar, — þar sem þeir ætla Sunnlendingum einum styrk til áburðarflutninga á landi. En jeg sleppi því að þessu sinni og læt þetta nægja.