15.03.1928
Neðri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2183 í B-deild Alþingistíðinda. (1134)

30. mál, tilbúinn áburður

Sigurður Eggerz:

Jeg vil gera hjer grein fyrir atkv. mínu með nokkrum orðum. Jeg hefi ávalt verið andstæður einokun og er það enn. Jeg vil fá að heyra alvarlegri ástæður en þær, sem hjer hafa verið bornar fram, áður en jeg get ljeð þessu máli fylgi mitt.

Hjer er um mikilvægt mál að ræða fyrir bændur. Jeg sje á engan hátt eftir því, þótt fje sje veitt til þess að koma vöru þessari til notendanna, en þá sýnist ástæða til að hugsa um annað meira en að koma áburðinum til kaupstaðanna. En jeg sje ekki, að ástæða sje til að víkja frá þeim almenna grundvelli, sem verslun og viðskifti hafa hvílt á undanfarið –grundvelli hinnar frjálsu samkepni.

Jeg hefi ekki sjeð, að neinar frambærilegar ástæður hafi komið hjer fram fyrir því, að víkja af þessum grundvelli.

Jeg hefi lesið greinargerð frv. með athygli. Skilst mjer, að sú ástæða fyrir einkasölunni, sem á að. vera aðalástæða, sje í 2. lið ályktana þeirra, er sendimaður stjórnarinnar dregur í niðurlagi skýrslu sinnar, þar sem svo segir:

„Um áburðarefni alment er óhætt að fullyrða það, að til að geta komist að sem bestum kaupum á þeim, er nauðsynlegt að kaupa þau í einu lagi, þar sem áburðarverslun okkar er svo hverfandi lítil, að skifting innkaupanna á margar hendur við ýmsar verslanir einungis spillir samningsaðstöðu okkar, sem fyrirfram er nægilega erfið“.

Það mun nú vera yfirleitt ríkjandi skoðun, að nauðsynlegt sje að gera sem mest innkaup til að ná góðum kaupum, og því er sú stefna komin fram, að leggja einkasöluhöft á alla verslun. En þar á móti vegur sú ástæða, að þegar öll verslun er komin á eina hönd, þá er svo mikið í húfi, ef illa fer, að slíkar ráðstafanir eru hreinasta hættuspil fyrir þjóðarheildina. Þó er enn ótalin sú hætta, sem af því stafar, þegar verslunin er komin á eina hönd, að á allan hátt sje reynt að freista þeirra, sem hana hafa með höndum, með mútum og ýmsum slíkum meðulum. En þótt ekki sje um það að ræða, eru mistök þau, sem þessari einu hendi geta orðið á, svo hættuleg, að þessi ástæða vegur fullkomlega á móti því, þótt hægara sje að gera stór innkaup með einkasölufyrirkomulaginu.

Þá kem jeg að 3. lið í ályktunum sendimanns stjórnarinnar, háttv. þm. Mýr., um þýska köfnunarefnið og nýju áburðarblönduna:

„Um þýskan köfnunarefnisáburð og hina nýju áburðarblöndu, Nitrophoska, er það auk þess sjerstaklega að segja, að eina hugsanlega leiðin til að fá þau beint frá framleiðslustöðvunum, er að koma á ríkiseinkasölu með áburð“.

Þetta er víst alveg rjett, að einstökum mönnum og fjelögum hjer á landi hafi ekki tekist enn að komast í beint samband við verksmiðjurnar. En þótt það hafi ekki enn tekist, má vel vera, að það takist í framtíðinni, og engar líkur eru fyrir því, að einkasölu takist betur.

Ef víkja á af hinum almenna grundvelli hinnar frjálsu samkepni, þá þarf frekari ástæður en þær, sem nú hafa verið færðar fram. Þá vildi jeg varpa fram þeirri spurningu, hvernig fyrirkomulagið er á sölu þessarar vörutegundar í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og öðrum nágrannalöndum. Er einkasala á áburði þar? Jeg held, að svo sje ekki, og versla þó lönd þessi við hina sömu miðstöð og við, fjelagið í Berlín. Hvers vegna ætti þá að vera sjerstök ástæða fyrir okkur að setja hjer upp einkasölu, úr því að hún hefir ekki verið tekin upp þar, sem sömu ástæður eru fyrir hendi? Jeg sje enga ástæðu til þess.

En því meiri ástæðu sje jeg til að óttast það, að þetta frv. sje fyrirboði meiri einokunar í landinu. Hjer úir og grúir af einokunarfrv. í þinginu. Jeg skal engu spá um það, hversu mörg þeirra, eða hvort nokkurt þeirra nær samþykki Alþingis, en mjer finst einhver einokunaralda vera að rísa upp hjer í þinginu. Og vegna þessarar einokunaröldu, sem nú rís svo hátt, finn jeg ástæðu til að spyrja hæstv. fors.- og atvmrh., hvort hæstv. Stj. hafi einokun á stefnuskrá sinni eða ekki. Jeg hefi áður vikið að þessu og veit, að allir, sem unna frjálsri verslun, hlusta á svörin með athygli. Jeg vil spyrja, hvort hæstv. stj. standi á grundvelli hinnar frjálsu samkepni eða hafi tekið einokunina á stefnuskrá sína. Ef hæstv. fors.- og atvmrh. telur stjórn sína standa á grundvelli hinnar frjálsu samkepni, þá verður hann að bera fram ástæður fyrir þessu frv. En það er trú mín, sem hefi trú á frjálsri verslun, að vandamál verslunarinnar leysist best á grundvelli hinnar frjálsu samkepni.

Ef þetta frv. verður samþ. — og jeg efast ekki um, að svo verði, og einhverjir verði til þess að syngja stjórninni lof og dýrð fyrir það —, þá mun reynslan skera úr því, hvort bændur fá áburð sinn ódýrar á þann hátt heldur en ef áburðarverslunin færi fram á þeim grundvelli, sem öll heilbrigð verslun á að vera rekin á. Ætli það verði ekki einhverjir aðrir en bændurnir, sem græða á einokuninni?