15.03.1928
Neðri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2194 í B-deild Alþingistíðinda. (1137)

30. mál, tilbúinn áburður

Pjetur Ottesen:

Það er nú búið að taka svo margt fram um þetta mál, að jeg hefi þar í rauninni ekki miklu við að bæta. En fyrst verið er að reyna að finna þann grundvöll, sem hægt er að sameina á þær andstæðu skoðanir, sem fram hafa komið í þessu máli, þá vildi jeg leggja mitt fram til þess að samkomulag næðist um afgreiðslu málsins. Jeg býst nú við, og er þar á sama máli og hæstv. forsrh., að það verði hlutverk hv. landbn. að hafa forgöngu þess að bræða hinar sundurleitu skoðanir saman. En jeg vildi benda á, að það horfir dálítið öðruvísi við um flutning þessa máls nú heldur en að undanförnu, því eins og hæstv. atvmrh. benti til, þá var mál þetta fyrst borið fram af alveg sjerstökum ástæðum, og það eru þær ástæður, er hafa ráðið flutningi þess alt þar til nú. Því var sem sje svo varið, að Búnaðarfjelag Íslands hafði náð í umboð frá fjelaginu, sem framleiddi áburðinn, en tapaði því svo aftur, en í þess stað náði einstakt firma hjer í bænum þessu umboði. Það er fyrst nú, sem mál þetta er flutt á þeim grundvelli, að raunverulega er um það að ræða, hvort vera skuli hjer eftir frjáls verslun eða einkasala á þessari vöru. Það verður að líta á það, hvort muni líklegra til að verða bændum til hagnaðar. Fylgismenn einkasölunnar segja vitanlega, að það fyrirkomulagið sje heppilegra fyrir bændur og líklegra til þess að auka notkun tilbúins áburðar. En jeg verð nú að hallast að því, að ekki sje mikill vinningur að einkasölu, og jeg held, að það sje mjög hæpið að gera sjer miklar vonir um mikinn árangur af henni út af fyrir sig. Það hefir líka verið sýnt fram á, að þetta mál horfir svo við, að verslunin með köfnunarefnisáburð er í höndum eins fjelags á Norðurlöndum, svo ekki væri í annað hús að venda en til þess. Við mundum ekki geta komist í beint verslunarsamband við fjelagið, sem framleiðir áburðinn, þó komið væri á einkasölu, því verslunarfjel. í Danmörku hefir líka einkaumboð fyrir Ísland. Og þó að við kæmumst í beint verslunarsamband við þýska fjelagið, þá er spurning, hvort nokkur hagnaður yrði að því, sökum þess, að danska fjelagið, sem hefir einkaumboðið, mundi fá ákveðnar prósentur af öllu, sem selt væri, enda þó það væri selt beint. Þetta er höfuðregla í viðskiftalífinu, og það sama mundi auðvitað verða hjer uppi á teningunum. Það er því mjög vafasamt, að við ynnum nokkuð á þessu. Ein stærsta verslun þessa lands, S. Í. S., hefir reynt að komast í beint samband, en ekki tekist. Það byggist því ekki á öðru en hugboði hv. þm. Mýr., að þetta geti tekist.

Sami hv. þm. var að tala um það, að ef þessi verslun yrði ekki rekin með einkasölufyrirkomulagi, gæti svo farið, að verslunin með tilbúinn áburð lenti í höndum einstakra manna eða fjelaga. En jeg verð að segja það, að jeg býst við, að það komi í sama stað niður, hver hefir verslunina, ef þetta fjelag í Danmörku, sem aðalumboðið hefir, ekki vill sleppa því, eins og miklar líkur eru til. Og jeg get ekki sjeð, að það verði nokkur breyting til batnaðar, þó þessi einkasala komist á. Þá var hv. þm. að tala um, að þetta væri sjálfstæðismál, og meinti það til hv. þm. Dal. Án þess jeg ætli mjer á nokkurn hátt að fara að svara fyrir hann, vil jeg segja það, að jeg álít ekki, að leiðin til sjálfstæðis liggi um einkasölur. (SE: Þetta var vel sagt). Eitt af því, sem þessu frv. hefir verið fært til gildis, er það, að flutningur áburðarins verði ódýrari, ef einkasala kæmist á. Það er jeg ekki viss um, enda mun það vera miðað við það fyrirkomulag, sem á að vera á sölu áburðarins. En jeg er nú ekki viss um, að það verði svo gott að framfylgja því, sökum þess, að hvorki búnaðarfjelög nje hreppsfjelög hafa nægileg húsaráð til þess að geta birgt sig upp, þó þau vildu, eins og hv. þm. Mýr. ætlast til, að þau geri. Auk þess er áburður þessi talsvert vandgeymdur, ef hann á að geymast um lengri tíma, að minsta kosti sumar tegundir hans.

Þegar af þessari ástæðu verður nokkuð erfitt um framkvæmdina. Auk þess hafa bændur lítið fjármagn til kaupa gegn greiðslu út í hönd, eins og nú horfir við um viðskifti þeirra. Raunar liggur nú fyrir Alþingi frv. til laga um atvinnurekstrarlán, og ef því auðnaðist að afgreiða það breytingalítið, væri að vísu nokkuð úr þessu bætt. En jeg býst við, að verslun bænda með þessa vöru, áburðinn, fari eftir sem áður fram gegnum kaupmenn og kaupfjelög, og er því sjálfsagt að heimila kaupmönnum að hafa einnig þessa vöru á boðstólum, viðskiftamanna þeirra vegna. Jeg hygg, að mjög erfitt reynist að framkvæma þetta eftir tillögu hv. þm. Mýr., og þess vegna hætt við, að ekki náist sá mikli hagnaður, sem því gæti orðið samfara að lesta heil skip með vörunni.

Frá mínu sjónarmiði horfir þessu máli svo við, að aðalkostur frv. — og hann tel jeg mikinn — er sá, að gert er ráð fyrir að veita bændum fjárhagslegan stuðning til að afla sjer tilbúins áburðar og fá þeim tækifæri til að kynnast nytsemi hans. Jeg vil leggja áherslu á, að þessu verði ágengt. En fyrirkomulag það, sem frv. gerir ráð fyrir, er í beinni andstöðu við meginhugsun þess. Því að ef eingöngu á að borga flutningskostnaðinn til landsins, þá verður það að mestu gagni fyrir kaupstaðina og nágrenni þeirra. En einmitt þar er minst þörf að útbreiða þekkingu á tilbúnum áburði, því að þar hefir hann lengi verið notaður. Hinn daglegi markaður fyrir afurðirnar, sem kaupstaðabændur og næstu nágrannar hafa, gerir aðstöðuna til ræktunar einnig gagnólíka við kaupstaði og úti um landið, þar sem ef til vill eru ekki nema tvö tækifæri á ári til afurðasölu. Stuðningurinn er samkvæmt frv. eins og það er nú þannig mestur þar, sem síst skyldi. Þekkingin á tilbúnum áburði og notkun hans er þeim mun minni, sem fjær dregur kaupstöðunum, og alls engin fjærst þeim. En styrkurinn er þeim mun minni, sem hans er meiri þörf. Það er stór galli á frv. og rekst hrottalega á aðaltilgang þess.

Brtt. hv. landbn. og hv. 1. þm. N.-M. miða til nokkurra bóta á þessu. Brtt. hv. landbn. snertir raunar aðeins tvær sýslur hjer á Suðurlandi. Að vísu stendur nokkuð sjerstaklega á um þær, en varla þó svo, að hægt sje að taka þær einar út úr. Till. hv. 1. þm. N.-M. er víðtækari, og að því leyti betri, en hún er talsvert óákveðin. Enda er erfiðara að finna rjettlátan grundvöll til að styðja menn með flutningi vörunnar á landi en sjó.

Verði það nú niðurstaðan að samþykkja ákvæði frv. um ívilnun á flutningsgjaldi, þá vil jeg taka undir orð hæstv. atvmrh., hvort hv. landbn. sjer sjer ekki fært að sjóða þessar brtt. saman, eða orða á annan hátt þá hugsun, sem bak við báðar liggur.

Þar sem jeg sje nú ekki aðra kosti við þetta frv. en þann fjárhagslega stuðning, sem jeg nú hefi talað um, þá hlýtur hjá mjer að vakna sama spurning og hjá hv. 2. þm. Skagf.: Er ekki hægt að ná sama marki með öðru en einkasölu? — Hv. þm. benti líka á leið í þessu efni, sem sje þá, að veita hreppabúnaðarfjelögunum verðlaun fyrir áburðarnotkun, sem síðan væri skift milli áburðarnotenda. Mælikvarðinn ætti að vera sá, hve mikinn tilbúinn áburð hver bóndi hefði notað, og hve mikill flutningskostnaður legðist raunverulega á áburðinn, án tillits til þess, hvar hann væri keyptur. Jeg vildi óska, að hv. landbn. tæki þetta til athugunar og reyndi að finna leið, sem við gætum allir orðið sammála um, sem viljum útbreiða þekkingu og notkun á tilbúnum áburði. Því að þótt fyrst og fremst beri að nýta vel þann áburð, er til fellur heima fyrir, verður þó að taka hinn útlenda til hjálpar við hið mikla verkefni, sem framundan er um ræktun landsins.

Í frv. er ekki gert ráð fyrir að styrkja menn til áburðarkaupanna með ókeypis flutningum nema 3 ár. Hjer er því um algerða bráðabirgðaráðstöfun að ræða. Þótt ekki þurfi að halda þessari starfsemi lengi uppi, þá geri jeg þó ráð fyrir, að 3 ár sjeu of skammur tími til að þekking manna á nytsemi tilbúins áburðar verði almenn. Jeg vil, að reynt sje að byggja til meiri frambúðar í áburðarmálinu að þessu leyti en þarna er gert.

Jeg lýk máli mínu með því að óska, að hv. landbn. geti fundið einhvern þann grundvöll, sem allir velunnarar málsins geti mætst á. Þá yrði málið vissulega leitt fram til sigurs. Vona jeg, að Alþingi takist svo vel í þessu máli sem hinu, er hæstv. atvmrh. mintist á.