15.03.1928
Neðri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2201 í B-deild Alþingistíðinda. (1139)

30. mál, tilbúinn áburður

Frsm. (Lárus Helgason):

Hv. 1. þm. Reykv. spurði, hvort landbn. hefði kynt sjer, hve mikinn kostnað frv. mundi hafa í för með sjer, ef samþykt yrði. Jeg gleymdi að svara þessu áðan, en það kom ekki svo mjög að sök, því að hv. þm. svaraði sjer sjálfur; sagði, að skýrslur væru ónógar og ómögulegt að vita um notkunina, hve mikil hún yrði. Annars var það svo um þennan hv. þm., að hann sagði í öðru orðinu, að áburðarnotkunin yrði svo lítil, að ekki tæki því að koma á fót landsverslun á honum, og í hinu orðinu, að útgjöld ríkissjóðs yrðu gífurleg, máske ½ miljón króna, vegna einkasölunnar á áburðinum, — árlegur kostnaður, að því er mjer skildist. Þetta sýnist mjer stangast illilega.

Hv. þm. var enn að tala um einokun. Mig skal ekkert furða, þótt bæði hann og fleiri tönnlist í sífellu á þessu, ef þeir trúa sjálfir því, sem þeir eru að segja. T. d. sagði hv. þm. áðan, að hann væri ekki í neinum vafa um það, að afleiðingin af ríkisverslun nú yrði hin sama sem af einokuninni fyr á öldum. Ef hann trúir þessu í raun og veru, þá skal mig ekki furða, þótt hann sje hræddur. En jeg get ekki ímyndað mjer, að nokkur þingmaður sje svo skyni skroppinn, að hann segi annað eins og þetta í alvöru. Það var dálítið öðruvísi um gömlu einokunina. Þá var aðeins um valdboð að ræða frá konungi, ókunnugum og ábyrgðarlausum, sitjandi í öðru landi. Verslunin var í engu miðuð við hag landsmanna og stjórnað með ókunnugleika á högum þeirra. Það er ótrúlegt og undursamlegt, að mönnum, sem taldir eru sæmilega skynugir, skuli koma til hugar þessi samanburður. En hv. 1. þm. Reykv. er ekki einn um þetta. Hv. þm. Dal. lagðist á svipaða sveif, þótt hann tæki ekki eins djúpt í árinni. Það er augljóst, að þetta er sagt alveg út í bláinn. Við höfum nú alt í eigin hendi um þessi mál; getum þar á meðal lagt niður einkasöluna, þegar við viljum.

Hv. 1. þm. Reykv. var að benda á, að ekki væru svipuð skilyrðin til ræktunar í Mosfellssveit og úti um landið, og því væri lítils virði samanburður á því, hvað gert hefði verið þar og annarsstaðar. Nefndinni var vel kunnugt um þetta áður. En þó að ræktunin úti um sveitir landsins verði ekki svipað því í eins stórum stíl og í Mosfellssveit, þá gæti jarðirnar munað um þá túnauka, sem þær fengju fyrir notkun tilbúins áburðar. Mjer hefir verið sagt um eina jörð í Mosfellssveit, sem nú framfleytir yfir 20 kúm, þar sem voru 2 eða 3 kýr fyrir 14 árum. Þetta hefir einn bóndi áorkað með hagsýni og dugnaði á greindum tíma. (Forsrh. TrÞ: Alt að þakka tilbúnum áburði). — Úti um land erum við ekki svo stórhuga, að við getum ekki látið okkur minna nægja. En ræktunarmöguleikarnir eru ónógir, nema með auknum áburði. Ef hann vantar, er ekki hægt að rækta jarðirnar, jafnvel þótt jarðyrkjuverkfæri komist inn á hvert heimili.

Þá er það hv. 2. þm. Skagf. Honum þarf jeg ekki mörgu að svara, enda veit jeg, að fleiri en jeg eru orðnir þreyttir á þessari löngu umr. Eins og fleiri hv. ræðumenn taldi hann, að frv. hjálpaði síst þeim, er helst skyldi, dalabændunum, sem dygði einn baggi handa ánni yfir veturinn. Þeir mundu þurfa að sækja áburðinn svo langt, sagði hv. þm., að þeim kæmi hann ekki að liði. Í þessu eru náttúrlega miklar fjarstæður. — Ef einhverjum dalabændum dugir einn baggi handa ánni, sem jeg skal ekki rengja, þá er augljóst mál, að þeim er mikið hagræði að því að geta fjölgað böggunum. Þeir ættu að mega leggja enn meira á sig til þess heldur en sá, sem þarf 5 eða 6 bagga handa hverri á. Mjer finst þessi dæmalausi barlómur ganga alt of langt, þegar bændur eiga ekkert að geta, ekki einu sinni náð heim til sín fáum pokum af áburði frá næsta verslunarstað. Meining frv. er að flytja áburðinn á sem allra flestar hafnir, og held jeg, að bændum sje ekki vorkunn að ná honum þaðan heim til sín. Þeir eru ekki svo gerþrotnir öllum dug, að þeim sje það nokkur ofraun. Mjer finst það of mikill barlómur. Hv. þm. fór að vísu vægum orðum um það, að við í nefndinni værum Sunnlendingar, og gat þess, að þrátt fyrir það mundi sjálfsagt engin hlutdrægni koma þar til greina; en það mátti svo sem skilja á honum, að honum hefði fundist gæta nokkurrar hlutdrægni í því, að nefndin leggur til, að áburðurinn verði fluttur ókeypis austur í Árnes- og Rangárvallasýslur. Ef nokkursstaðar eru erfiðleikar á að flytja hann landleið á hestum, þá er það þar. Jeg veit, að fjöldi bænda mundi nota sína hesta til aðdrátta, ef þeir hefðu frið til að ferðast eftir vegunum fyrir bilum. Jeg skil ekki í, að þeim hafi farið svo mikið aftur síðustu 10–15 árin. Þegar maður var á ferð á vorin, komst maður oft lítt áfram vegna stanslausra lestaferða, sem mestmegnis voru þorskhausalestir. Jeg held það sje enginn vafi á því, ef bændur eystra hefðu sömu aðstöðu til aðflutninga nú og þá, mundu þeir telja sjer arðvænlegra að sleppa hausunum og flytja heldur tilbúinn áburð heim á býlin og auka túnin. Bílaumferðin bagar ekki annarsstaðar enn sem komið er, svo nokkru nemi. Þess vegna er ekki hægt að drótta neinni hlutdrægni að nefndinni fyrir þessa till., og það því síður, sem það er vitanlegt, að ríkissjóði yrði dýrara að kosta flutning áburðarins sjóleiðina í umræddar sýslur.

Hv. þm. Dal. þarf jeg ekki að svara sjerstaklega. Jeg tel svar mitt til hv. 1. þm. Reykv. hafa náð til hans einnig. Það hefir einatt svo verið, að þessi hv. þm. hefir haft horn í síðu Samvinnufjelaganna, að jeg ekki tali um einkasölu, en það er hlutur, sem hann má ekki heyra nefndan, svo að ekki raskist sálarjafnvægi hans. En það er eins um hann og hv. 1. þm. Reykv., að þótt hann haldi langar og fjálglegar ræður, þá hljómar það í eyrum margra sem meira og minna alvöruleysi.

Hv. þm. Borgf. komst svo að orði, að hann hjeldi ekki, að leiðin til sjálfstæðis væri sú, að koma á stofn einkasölu. Hver hefir haldið því fram? Mjer vitanlega enginn. En mjer er spurn: Að hvaða leyti ætti einkasala að standa í vegi fyrir sjálfstæðinu?

Jeg ætla þá ekki að þreyta hv. deild á lengri ræðu. Jeg hefi þegar sagt nægilega margt, og þó að jeg hafi punktað fleira niður hjá mjer, ætla jeg að hlaupa yfir það. En að síðustu vil jeg lýsa yfir því, að það hefir orðið að samkomulagi milli flestra í landbn. og hv. 1. þm. N.-M. að taka aftur brtt. Nefndin tekur sínar brtt. aftur til 3. umr., ef hann gerir sama. Jeg efa ekki, að flestir eða helst allir vilji þessu máli vel, þótt greini á um leiðir til þess að sjá því sem best og rjettlátlegast farborða.