15.03.1928
Neðri deild: 48. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2220 í B-deild Alþingistíðinda. (1144)
30. mál, tilbúinn áburður
Sigurður Eggerz:
Hæstv. atvmrh. leit svo á, að hjer væri frekar um ræktunar- en verslunaratriði að ræða. En hjer eru allir sammála um ræktunaratriði þessa máls. Allir vilja greiða götu bænda til þess að fá ódýran áburð, og tek jeg fast í þann streng og skal ekki standa á mjer til þess. En hv. 1. þm. Skagf. hefir sýnt fram á það, að það er hægt, þó menn sjeu með frjálsri verslun. Það er því verslunaratriðið, sem ágreiningur er um. Og spurningin er þá, hvort nokkur ástæða er til þess að yfirgefa þann grundvöll, sem áburðarverslunin hefir staðið á hingað til. Jeg spurði háttv. þm. Mýr. um þetta, en hann er sjerstaklega kunnugur þessu máli, og jeg hefi verið að velta fyrir mjer svari hans, en fæ með engu móti sjeð, að honum hafi tekist að færa nokkur rök að því, að einokun sje nauðsynleg. Jeg skildi hann svo, að hann áliti, að ekki væri hægt að ná beinu sambandi við þessa áburðarverslunarmiðstöð í Berlín, nema því aðeins, að ríkið tæki einkasölu. á áburði. En mjer virtist hann ekki geta fært sönnur á þetta. Háttv. þm. fann ástæðu til að kalla mig „sjálfstæðishetju“, vegna þess, að jeg hjelt, að þessir erfiðleikar mundu ef til vill stafa af því, að þeim mönnum, sem fyrir þessu þýska fyrirtæki standa, kynni að vera ókunnugt um það, að Ísland og Danmörk eru tvö ríki. En jeg verð að segja, að mjer finst það ólíklegt, að þetta danska fjelag hefði fengið umboð fyrir bæði löndin, ef þýska fjelaginu hefði verið kunnugt um það, að þetta eru tvö ríki. Svo framarlega sem einstakir menn geta ekki fengið beint samband við þessa þýsku sölumiðstöð, þá er jeg viss um það, að það yrði ekki ljettara fyrir ríkiseinokun. Jeg býst við því, að fyrir þessari sölumiðstöð standi slíkir menn, að þeir kjósi heldur að eiga viðskifti við land, sem hefir frjálsa verslun, en það land, sem einokun hefir. Þess vegna verð jeg að líta svo á, að engar líkur sjeu til þess, að greiðara verði að ná þessu sambandi, þótt ríkiseinokun leitaði eftir því en einstakir menn.
Jeg spurði hv. þm. Mýr. einnig um það, hvort sú ástæða væri til einokunar hjer, að einokun væri á þessari vörutegund í nágrannalöndunum. Þeirri spurningu svaraði hann ótvírætt neitandi. En ef ekki er ástæða til einokunar þar, af hverju er þá ástæða til hennar hjer?
Sami hv. þm. sagði — auðvitað í spaugi —, að ef það skopleikaskáld, sem jeg nefndi hjer fyrir nokkrum dögum í ræðu, væri hjer, þá væri hann viss um, að jeg talaði minna. En jeg ímynda mjer, að slíkt skáld mundi fremur víkja að þeirri ungu ást, sem hjer er sýnileg á milli Framsóknarflokksins og jafnaðarmanna. Og jeg ímynda mjer, að þessi einokunarkrógi, sem hjer er á ferðinni, muni vera ein afleiðing af þessari ungu ást. (Rödd af þingbekkjum: Það passar líka upp á meðgöngutímann). Já, það passar upp á meðgöngutímann, segir háttv. sessunautur minn, háttv. 2. þm. G.-K. (ÓTh: Nei, nei, jeg sagði það ekki).
Mjer þykir leitt, að hv. þm. V.-Sk. þótti ræða mín hjer í kvöld of löng, því að hún var stutt, en hún var þrungin af röksemdum, og má vera, að þess vegna hafi honum fundist hún alt of löng.
Jeg held aldrei því fram hjer á þingi, sem jeg trúi ekki á. Og frjáls verslun er eitt af því, sem jeg trúi á, og jafnan síðan jeg kom á þing hefi jeg barist fyrir frjálsri verslun, en gegn einokun, og sá flokkur, sem jeg tilheyri, hefir sett frjálsa verslun efst á stefnuskrá sína. Og hvað sem háttv. þm. kann að segja um ræðu mína, þá má hann ekki segja, að mjer hafi ekki verið full alvara með henni. Það, sem kom mjer til þess að halda ræðu mína áðan, er hinn óvenjulega mikli fjöldi einokunarfrumvarpa, sem hjer er nú á ferðinni, og að jeg ber kvíðboga fyrir því, að þessi einokunarstefna kunni að eiga sjer dýpri rætur hjer á Alþingi en æskilegt væri.
Jeg get ímyndað mjer, að þegar á að taka upp einkasölu á áburði, en innflutningur hans fer auðvitað sívaxandi, þá verði sú verslun allumfangsmikil og þurfi góðrar stjórnar, því annars gæti illa farið fyrir bændum. En góð forstaða slíks fyrirtækis hlýtur að kosta mikið, og hygg jeg, að fljótt mundi koma í ljós, að meira verði lagt á áburðinn af þeim kostnaði en nú er gert ráð fyrir, og fá bændur sjálfsagt alvarlega að finna það. En þar sem allir eru sammála um, að það er höfuðatriðið í þessu máli, að áburðurinn verði bændum sem ódýrastur, með tilliti til þess, hve mikla þýðingu það hefir fyrir þjóðina að vekja áhuga bænda á jarðrækt, þá álít jeg, að stj. ætti að yfirgefa þennan einokunargrundvöll og taka málið til yfirvegunar að nýju og leita samkomulags um það á grundvelli frjálsrar verslunar. Og hygg jeg, að málið verði þá auðsótt.
Jeg spurði hæstv. fors.- og atvmrh., hvort hann og stj. væri heldur fylgjandi frjálsri verslun eða einokun yfirleitt. Hæstv. ráðh. taldi það ekki eiga við að bera fram slíka spurningu við 2. umr. máls; kvað hann það rjettara við 1. eða 3. umr. Skal jeg því ekki ganga ríkt eftir svari nú, en jeg vona, að hæstv. ráðh. verði reiðubúinn að gefa það svar við 3. umr., og jeg vona, að ástin unga, sem jeg gat um áðan, fái engin áhrif að hafa á það svar.